Bláa Lónið og Grindavíkurbær bjóða í gönguferð á annan í páskum
Á annan í páskum býður Grindavíkurbær og Bláa Lónið upp á menningar- og sögutengda gönguferð samstarfi við leiðsögumenn Reykjaness. Gangan hefst kl. 13.00 á bílastæði heilsulindar og er áætlað að hún taki um 2 og 1/2 klukkustund. Enginn þátttökukostnaður er í gönguna.
Gengið verður m.a. um mosagróið Illahraun, framhjá Rauðhól (gígnum sem hraunið kom úr á sögulegum tíma), haldið austur með suðurhlíðum Þorbjarnarfells og inn á Baðsvelli. Þar er ætlunin m.a. að kíkja á þjófaslóðir og hin fornu sel Grindvíkinga. Þá verður gengið yfir að svæði Hitaveitu Suðurnesja og um hið litskrúðuga lónssvæði að lækningalindinni og endað í heilsulind. Í lok göngu verður tilboð, 2 fyrir 1 ofan í lónið.
Reynt verður að hafa ferðina og fræðsluna þannig að börn jafnt sem fullorðnir hafi gagn og gaman af. Góður skófatnaður æskilegur. Allir á eigin ábyrgð.
www.bluelagoon.is