Bjartsýni eða svartsýni í atvinnumálum á Suðurnesjum?

En hver er sannleikurinn í málinu? Hvar stöndum við? Hvers konar atvinnustarfsemi er þörf á hér á þessu svæði og hvers konar atvinnustarfsemi viljum við skapa grundvöll fyrir í framtíðinni? Höfum við ástæðu til svartsýni? Er þörf á stórum skyndilausnum? Eða eru Suðurnesin ef til vill að verða mest vaxandi atvinnusvæði á landinu og framtíðin því björt?
Nú á laugardaginn mun Framtíðarlandið standa fyrir Vetrarþingi á Reykjanesi þar sem atvinnumál og framtíðarmöguleikar svæðisins verða til umræðu. Ég hvet alla þá sem hafa áhuga á framtíð atvinnuuppbyggingar á Suðurnesjum til þess að mæta á þingið og taka þátt í opinni og málefnalegri samræðu. Þar getum við vonandi komist að sameiginlegri niðurstöðu um það hvort tilefni sé til bjartsýni eða svartsýni.
Guðbjörg R. Jóhannesdóttir
Heimspekingur og talskona Sólar á Suðurnesjum