Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Aðsent

Birgir leiðir lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi
Birgir Þórarinsson.
Föstudagur 20. október 2017 kl. 10:31

Birgir leiðir lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi

Birgir Þórarinsson, sérfræðingur í alþjóðasamskiptum og guðfræðingur, mun leiða lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi í komandi Alþingiskosningum. Birgir starfaði við yfirstjórn UNRWA, flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna fyrir Palestínumenn, í Mið-Austurlöndum. Hann hefur sinnt verkefnum á vegum utanríkisráðuneytisins, var varaþingmaður fyrir Framsóknarflokkinn í Suðurkjördæmi 2009 til 2013 og sat í sveitarstjórn sveitarfélagsins Voga. Auk þess hefur hann rekið ferðaþjónustu um árabil.
Elvar Eyvindsson, viðskiptafræðingur og bóndi, er í öðru sæti listans og Sólveig Guðjónsdóttir, bæjarstarfsmaður, í því þriðja.

Framboðslisti Miðflokksins í Suðurkjördæmi, Alþingiskosningar 2017:

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

1.      Birgir Þórarinsson, sérfr. í alþjóðasamskiptum og guðfræðingur, Vogum.
2.      Elvar Eyvindsson, viðskiptafræðingur og bóndi, Rangárþingi eystra.
3.      Sólveig Guðjónsdóttir, bæjarstarfsmaður, Árborg.
4.      Ásdís Bjarnadóttir, garðyrkjubóndi, Hrunamannahreppi.
5.      Bjarni Gunnólfsson, hótel og rekstrarfræðingur, Reykjanesbæ.
6.      Ingibjörg Jenný Jóhannesdóttir, sölumaður og nemi, Reykjanesbæ.
7.      Herdís Hjörleifsdóttir, félagsráðgjafi, Hveragerði.
8.      Jón Gunnþór Þorsteinsson, húsasmíðanemi, Flóahreppi.
9.      Erling Magnússon, lögfr. Árborg.
10.   G. Svana Sigurjónsdóttir, myndlistarmaður, Kirkjubæjarklaustri.
11.   Sæmundur Jón Jónsson, bóndi, Höfn Hornafirði.
12.   Gunnar Már Gunnarsson, umboðsmaður, Grindavík.
13.   Ingi Sigurjónsson, hamskeri, Vestmannaeyjum.
14.   Úlfar Guðmundsson, héraðsdómslögmaður, Reykjanesbæ.
15.   Þóranna L Snorradóttir, grunnskólakennari, Grímsnes – og Grafningshreppi.
16.   Guðrún Tómasdóttir, ferðaþjónustubóndi, Ölfus.
17.   Hansína Ásta Björgvinsdóttir, eldri borgari, Þorlákshöfn.
18.   Valur Örn Gíslason, pípulagningameistari, Ölfus.
19.   Jafet Egill Ingvason, lögregluvarðstjóri, Vík Mýrdal.
20.   Rúnar Lúðvíksson, fv. framkvæmdastjóri, Reykjanesbær.