Bygg
Bygg

Aðsent

Barnið þarf á stuðningi þínum að halda
Fimmtudagur 29. september 2005 kl. 14:49

Barnið þarf á stuðningi þínum að halda

Nú þegar nokkrar vikur eru liðnar af skólaárinu eru flestir eflaust búnir að aðlaga sig að þeim breytingum sem því fylgir að mæta í skólann. Þeir sem þurftu „að rétta sólarhringinn við“ til að geta vaknað úthvíldir að morgni eru vonandi farnir að sofa fyrr á kvöldin en í sumar. Því sá sem ekki fær nægan nætursvefn getur ekki einbeitt sér nægjanlega vel til að meðtaka það sem fram fer í skólanum.
Einnig þarf að koma skipulagi á heimanámið. Allir nemendur fá eitthvað heimanám. Hjá yngstu nemendunum er mest áhersla á lestur en eftir því sem nemendur eldast eykst heimanámið. Mörgum nemendum og foreldrum leiðist heimanám og að sinna því skapar oft álag á heimilunum. Hafa ber í huga að heimanám gegnir fjölþættu hlutverki, má þar nefna endurtekningu sem er mikilvæg í öllu námi og gerir nemanda kleift að tileinka sér námsefnið. Heimanám er einnig eins konar brú á milli skóla og foreldra sem gerir þeim kleift að skyggnast inn í heim skólabarnsins, þeir geta þannig fylgst með hvaða verkefni barnið er að fást við og einnig hversu vel því gengur að takast á við verkefnin. Mikilvægt er að fylgjast með því að barnið sé að fá verkefni við hæfi og ef ekki að ræða þá við umsjónarkennarann. Heimanám þjónar einnig því hlutverki að hjálpa nemendum að taka ábyrgð á náminu og að skipuleggja sig. Foreldrar yngstu barnanna þurfa að styðja nemendur í því að ná tökum á þessu og er aldurinn færist yfir geta þeir smám saman sleppt takinu. Alltaf er samt mikilvægt að fylgjast með og sýna þeim verkefnum áhuga sem barnið er að fást við heima.

Áhugi foreldra skiptir sköpum
Fjölmargar rannsóknir sýna að börnum gengur betur í skóla ef foreldrarnir sýna heimanáminu áhuga. Foreldrar þurfa ekki að kunna það sem barnið er að læra heldur þurfa þeir að miðla til barnanna að það sé mikilvægt að sinna heimanáminu vel. Flestir skólar bjóða upp á aðstoð við heimanám og ef barnið á í erfiðleikum með að skilja heimanámið þá er um að gera að nýta sér aðstoðina í skólanum. Foreldrar mega samt ekki gleyma sínu hlutverki – eftirfylgni. Skólarnir þurfa líka að sýna aðstæðum nemenda skilning og hafa sveigjanleika í skipulagi sínu til dæmis á þann veg að nemendur hafi nokkra daga til að ljúka verkefnum en sé ekki sett fyrir deginum áður. Aðstæður eru misjafnar og margir nemendur í tómstundum eftir skóla sem taka oft mikinn tíma. Nemendur þurfa að fá tækifæri til að skipuleggja heimanámið í samræmi við þá dagskrá sem tekur við eftir skóla. Lesa má meira um heimanám á heimiliogskoli.is

Bestu kveðjur, Elín Thorarensen

Punktar fyrir foreldra:
¸ Stuðlaðu að friði og ró
¸ Ekki of seint á kvöldin
¸ Æfingin skapar meistarann
¸ Einbeiting eykur árangur
¸ Barnið þarf að skilja verkefnið
¸ Talaðu jákvætt um heimanámið
¸ Engan samanburð
¸ Vertu í nánu sambandi við skólann
¸ Barnið ber ábyrgðina
¸ Notið tæknina
Bílakjarninn
Bílakjarninn