HSS
HSS

Aðsent

Barnafólk: Einfalt að setja upp vefsíðu fyrir barnið á Barnanet.is
Þriðjudagur 15. nóvember 2005 kl. 00:43

Barnafólk: Einfalt að setja upp vefsíðu fyrir barnið á Barnanet.is

Barnanet.is er nýr vefur sem hóf göngu sína í júní 2005 með það að markmiði að þjóna foreldrum og börnum þeirra. Á vefnum gefst foreldrum tækifæri á að setja saman vefsíðu fyrir barnið sitt á einfaldan hátt. Foreldrar hafa mikla möguleika í notkun kerfisins. Þeim býðst að setja allt að því óteljandi myndir inn á síðurnar, flokkar þær niður í albúm, setja myndbönd, skrifa á heimasíður barnanna, skrifa dagbókarfærslur, halda sérstaka minningarbók um fyrstu árin þar sem þeir geta skráð alla atburði í lífi barnsins á borð við fyrsta brosið eða fyrstu sporin. Annar möguleiki sem er einstaklega áhugaverður er að mögulegt er að búa til undirsíður á vefi barnanna á mjög einfaldan hátt.

Um Barnanet.is
Barnanet.is er vefur ætlaður foreldrum og börnum þeirra. Hér geta foreldrar sett upp heimasíður fyrir börn sín, spjallað sín á milli, keypt og selt hluti á þar til gerðum smásölumarkaði og margt fleira. Barnanet hefur verið unninn og þróaður í samvinnu við notendur víða af landinu. Kerfið er því sérsniðið að raunverulegum þörfum notenda. Þeir möguleikar sem bjóðast notendum okkar eru mjög margir og er hér að neðan stuttlega greint frá þeim helstu.

Heimasíður barnanna eru einkamál
Við leggjum mikla áherslu á friðhelgi einkalífsins. Því hafa foreldrar fulla stjórn á því hverjir hafi aðgang til að skoða heimasíðu barnsins.

Nóg pláss fyrir myndir
Það er ekkert mál að setja inn myndir og nóg er plássið. Hverri heimasíðu fylgir pláss undir 3000, 5000 eða óendanlega margar myndir.

Þarfir notenda mikilvægar
Við vitum að þjónusta skiptir miklu máli og þess vegna taka stjórnendur, hönnuðir og forritarar, Barnanets daglega þátt í spjalli.

Myndbönd velkomin
Tókstu upp myndband af fyrstu skrefum barnsins? Hvað með fyrsta brosið? Nú geturðu þú deilt því með ættingjum á auðveldan hátt.

Góð og þægileg slóð
Fátt er betra en góð slóð á heimasíðu barnsins. Hjá okkur geturðu valið á milli nokkurra tegunda slóða eða valið þína eigin slóð.

Stöðug þróun
Við erum sífellt vakandi fyrir tæknibreytingum og nýjungum og kappkostum að koma til móts við þarfir notenda á hverjum tíma.

Ekkert mál að flytja sig
Það er stórt skref að flytja heimasíðu barnsins yfir í nýtt umhverfi. Þess vegna sjáum við um að flytja myndaalbúm, dagbók og gestabók fyrir þig.

Spjall og markaður
Mjög stórt og vinalegt samfélag er starfrækt á Barnaneti. Allan sólahringinn eiga sér stað umræður á spjallinu og hlutir ganga kaupum og sölum á markaðnum.
Bílakjarninn
Bílakjarninn