Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Þriðjudagur 25. nóvember 2003 kl. 08:44

Bandaríska herstöðin í nýju ljósi

Vinstri hreyfingin grænt framboð samþykkti svohljóðandi ályktun á landsfundi sínum í Hveragerði um daginn:
”Landsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fagnar því að útlit er fyrir að dregið verði úr umsvifum Bandaríkjahers á Íslandi. Við eigum að nota þetta sögulega tækifæri til að segja upp herstöðvarsamningnum frá 1951 og loka NATO-herstöðinni á Misnesheiði fyrir fullt og allt. Við viljum að Íslendingar eigi sér ímynd sem friðsöm þjóð. Sú ímynd fer ekki saman við að hafa hér hernaðaraðstöðu fyrir árásargjarnt stórveldi sem meirihluti Evrópubúa lítur nú á sem eina helstu ógnina við heimsfriðinn.
Umræða síðustu mánaða hefur sýnt að breytingar á herstöðinni eru óhjákvæmilegar. Þær þurfa að taka mið af hagsmunum íslensku þjóðarinnar en ekki bandarískra hernaðaryfirvalda. Draga verður Bandaríkjastjórn til ábyrgðar fyrir þeirri eyðileggingu sem herinn hefur valdið á umhverfi og náttúru. Íslenskum stjórnvöldum er skylt að sjá til þess að herinn hreinsi til eftir sig í samræmi við ýtrustu kröfur, þótt reikna megi með að það kosti þúsundir ársverka. Jafnframt ber að kanna réttarfarslega stöðu sveitarfélaga og einstaklinga sem orðið hafa fyrir skakkaföllum af völdum hersetunnar og rétt þeirra til skaðabóta.
Herstöðin hefur komið í veg fyrir fjölbreytta og heilbrigða atvinnuþróun á Suðurnesjum, rétt eins og herstöðvar um allan heim gera. Við brottför hersins opnast óteljandi möguleikar til nýsköpunar í atvinnulífi á Suðurnesjum.”

Herstöð er mein sem fjarlægja þarf
Allt frá því að bandaríski herinn kom árið 1951 hafa vinstri menn og aðrir unnendur friðar og þjóðfrelsis litið á hann sem mein í íslensku þjóðlífi. Við teljum enga vörn í honum – eins og nú hefur í raun verið viðurkennt af Bandaríkjamönnum sjálfum – heldur stafar af honum hætta, því herstöð hlýtur ávallt að vera skotmark í stríðsátökum.
Atvinnulíf á Suðurnesjum sýktist illa af þessu meini. Suðurnesin urðu háð hermangi og aðrar heilbrigðari atvinnugreinar hafa átt erfitt uppdráttar. “Þið hafið herinn” hefur gjarna verið sagt við Suðurnesjamenn ef þeir hafa leitað eftir sams konar fyrirgreiðslu og önnur byggðarlög hafa fengið.
Herstöðvasamningnum fylgdi valdaafsal og nú kemur berlega í ljós að völdin yfir herstöðinni eru að sjálfsögðu í Washington. Þeir gera það sem þeim hentar óháð okkar hagsmunum, hvort heldur rætt er um landvarnir eða atvinnu.
Vinstri hreyfingin Grænt framboð vill losa okkur Íslendinga úr þessari sjálfheldu. Þingmenn VG hafa tvívegis flutt tillögu á Alþingi um að íslensk stjórnvöld leiti eftir samningum um að herinn fari og hreinsi eftir sig - og að við nýtum okkur möguleika til nýsköpunar í atvinnulífi sem þá opnast. Hægristjórnin íslenska tók það auðvitað ekki í mál, en hefur legið löngum stundum á hnjánum í Washington til að biðja þarlenda um að herinn verði áfram. Þannig tókst að vísu að lengja í þeirri hengingaról sem nú herðist fastar en ella að atvinnulífinu hér.
Fundur með Steingrími í kvöld
Vinstri grænir halda fund um þá stöðu sem nú er komin upp í herstöðvarmálinu kl. 20.00 á fimmtudagskvöld á Flughóteli. Þar mun Steingrímur J. Sigfússon, alþingismaður og formaður flokksins, mun fjalla um málin m.a. út frá breyttum aðstæðum í alþjóðastjórnmálum og öryggismálum. Ólafur Þór Ólafsson bæjarfulltrúi í Sandgerði fjallar um málið af sjónarhóli sveitarfélags sem á mikilla hagsmuna að gæta.  Einnig fáum við að heyra raddir verkalýðsfélaga hér um slóðir og vonandi raddir margra fundarmanna. Ég skora á sem flesta að mæta til að hlusta og taka til máls. Þetta málefni hefur margar hliðar og kemur okkur svo sannarlega við. Hvað er hægt að gera hér annað og betra en að þjónusta erlendan her? Leitum svara við því.

Þorvaldur Örn Árnason
líffræðingur og kennari og formaður VG á Suðurnesjum.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024