Bygg
Bygg

Aðsent

  • Bær hafsins
  • Bær hafsins
Þriðjudagur 27. maí 2014 kl. 09:59

Bær hafsins

– Gígja Sigríður Guðjónsdóttir

Aukning  á komum erlendra ferðamanna til landsins hefur verið mikil síðustu ár og njótum við íbúar í Reykjanesbæ þess eins og aðrir landsmenn. Við erum í þeirri öfundsverðu stöðu að vera hér rétt við flugstöðina sem er stór vinnuveitandi fjölda íbúa bæjarins. Við þurfum þó að nýta okkur þessa staðsetningu betur og draga inn í bæinn fleiri ferðamann en nú koma. Þær aðgerðir sem bæjaryfirvöld hafa nýlega farið í með því að setja upp falleg og áberandi bæjarhlið við Reykjanesbrautina eru gott lóð á þær vogaskálar og fjöldi nýrra og nýlegra safna draga að ferðamenn.

En hvað getum við gert til þess að gera betur?

Þar til fyrir stuttu bjó ég ofarlega í blokk  hér í bæ með gott útsýni yfir sjóinn og strandlengjuna sem nú er búið að fegra mikið og gera aðgengilega almenningi. Hafið hefur aðdráttarafl og það eigum við að nýta okkur miklu betur. Við erum með fallega strandlengju, við erum með þrjár hafnir inní bænum sem mega svo sannarlega við meira lífi og við erum með miðbæinn og því alla þjónustu, alveg við sjóinn.
Það er svo ótrúlega margt sem hægt er að gera við og í sjónum. Hvalaskoðun, stangveiði, siglingar, köfun, sjósund,fuglaskoðun, sjóskíði og sæþotur svo fátt eitt sé nefnt. Þarna gæti skapast tækifæri fyrir ungt fólk að hasla sér völl í atvinnulífinu því sjósport af öllu tagi heillar það ekki síst. Síðan er það almenn útivst við sjóinn sem eykst bara þegar að meira líf kviknar þar. Það væri einnig hægt að tengja margskonar atburði við sjóinn og hafnirnar.

Ég er mikil áhugamanneskja um mat og hafið okkar er matarkista. Við sem erum með þessa kistu hér í bakgarðinum eigum að nýta okkur þetta miklu betur. Víða erlendis eru fiskmarkaðir fyrir almenning þar sem fjöldi fólks kemur og verslar ferskar sjávarafurðir. Það væri gaman að sjá þannig markað verða að veruleika hér í Reykjanesbæ, markað sem ekki drægi aðeins að erlenda ferðamenn heldur ekki síður fólk af höfuðborgarsvæðinu. Til hliðar við fiskmarkaðinn væri síðan ekki ólíklegt að markaðir fyrir aðra matvöru kæmu í kjölfarið og mikið líf gæti skapast í bænum. Það gæfi þá annari verslun og þjónustu byr undir báða vængi öllum bæjarbúum til hagsbóta.

Þetta þyrfti að sjálfsögðu allt að vera gert í góðu samstarfi einkaaðila og bæjaryfirvalda en ég er sannfærð um það að með samstilltu átaki getum við náð því að gera Reykjanesbæ að bæ hafsins, ferskan bæ með ferskasta fiskinn.

Gígja Sigríður Guðjónsdóttir
Frambjóðandi D-lista sjálfstæðismanna
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn