Bæjarbúar geri hreint fyrir sínum dyrum
Í tilefni af Grænum apríl og Degi umhverfisins vilja leikskólabörn og kennarar Tjarnarsels, hvetja alla bæjarbúa til að ,,gera hreint fyrir sínum dyrum“.
Umhverfisliðar í Tjarnarseli, ætla ekki að láta sitt eftir liggja og munu þann 25. apríl taka til hendinni á Tjarnargötutorginu og í skrúðgarðinum. Börnin vilja endilega fá fleiri í lið með sér og bjóða bæjarbúum að leggja sitt af mörkum og mæta á fyrrnefnda staði kl. 10.00, þann dag.
Umhverfisliðar Tjarnarsels