Bygg
Bygg

Aðsent

Aukaútgáfa Fréttablaðsins
Föstudagur 26. maí 2006 kl. 23:58

Aukaútgáfa Fréttablaðsins

Það var sérkennileg sendingin sem kom inn um lúguna hjá mér í kvöld. Þetta virtist vera aukaútgáfa af Fréttablaðinu, því enginn var skrifaður fyrir sendingunni.

Sendingin var tilvitnun í grein sem birtist í Fréttablaðinu. Fréttin fjallaði um ritgerð Sigurðar nokkurs Björnssonar um stjórnsýslu nokkurra sveitarfélaga. Ritgerðin ber saman stjórnsýslu og fjármál þessara sveitarfélaga.

Í námi Sigurðar er lítil sem engin áhersla á fjármál, auk þess sem leiðbeinandinn við ritgerðina (samkvæmt útgefanda þessa litla-Fréttablaðs) er prófessor við stjórnmálafræði en hvorki hagfræði né viðskiptafræði.

Það er því kannski ekki skrítið að ekki hafi komist upp um villurnar sem Sigurður gerir í ritgerðinni þegar kemur að fjármálahlutanum. Hann skoðar aðeins hluta fjármála bæjarins og föndrar auk þess við ársreikninginn. Sigurður bætir inn sem skuldum þeim leigugreiðslum sem bærinn mun borga í framtíðinni af húseignum Fasteignar, en sleppir alveg að taka tillit til þess að hluti leigunnar rennur aftur í bæjarsjóð. Þetta stenst ekki heldur reglur um ársreikninga.

Fréttablaðið birti greinina vitandi að forsvarsmenn Reykjanesbæjar höfðu við hana alvarlegar athugasemdir. Tveim dögum seinna fékk bæjarstjórinn að svara, en þá var vitnað í fyrrum fjármálastjóra bæjarins, Reyni Valbergsson, en alveg gleymdist að nefna þar að hann væri bæjarstjóraefni A-listans.

Það er leitt að annars málefnalegri kosningabaráttu ljúki á þennan hátt, því það hefði verið stórmannlegra að skrifa nafnið sitt undir sendinguna.

Ég þakka félögum mínum fyrir jákvæða og skemmtilega kosningabaráttu.

Garðar K. Vilhjálmsson
Varabæjarfulltrúi

Bílakjarninn
Bílakjarninn