HSS
HSS

Aðsent

  • Atvinna í fyrsta sæti
  • Atvinna í fyrsta sæti
Þriðjudagur 20. maí 2014 kl. 16:58

Atvinna í fyrsta sæti

– Ingigerður Sæmundsdóttir skrifar

Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ hafa náð góðum árangri á síðustu árum við að efla mannlíf, veita góða þjónustu og byggja upp atvinnu á svæðinu. Slíkur árangur næst með því að bjóða fólk og fyrirtæki velkomið í okkar samfélag ásamt því að hlúa að þeim sem fyrir eru.

Í Reykjanesbæ eru nokkur úrræði fyrir atvinnulaust ungt fólk til undirbúnings þátttöku í atvinnulífinu á ný. Með tilkomu ýmissa atvinnutækifæra í Reykjanesbæ eflist mannlífið og tækifæri til betra lífs.

Atvinnuleysistryggingakerfið gerir ráð fyrir því að þeir sem eru án vinnu komist aftur út á vinnumarkaðinn. Því miður hefur einnig færst í vöxt að atvinnulausir færist yfir í varanlega örorku. Afleiðingar kreppu hjá nágrannaþjóðum okkar hafa verið miklar og hátt hlutfall þeirra sem misst hafa vinnuna og orðið atvinnulausir til langs tíma hafa minni virkni og enda í sumum tilfellum sem öryrkjar (Félags-og tryggingamálaráðuneytið, 2009). Við viljum að atvinnulausir í Reykjanesbæ sjái leið  aftur út á vinnumarkaðinn og fái vinnu sem fyrst. Við viljum raunveruleg úrræði og fjölbreytt úrræði. Við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að greiða leið stórra og smárra fyrirtækja svo atvinnulífið verði blómlegt í Reykjanesbæ. Mannauðurinn er í húfi í bæjarfélagi sem er vel staðsett í nágrenni við alþjóðaflugvöll, stórskipahöfn og stórbrotna náttúru á Reykjanesi.

Markmið okkar eru skýr. Við viljum atvinnuuppbyggingu í Reykjanesbæ, fjölbreytt tækifæri fyrir verkafólk, iðnaðarmenn, sérfræðinga og háskólamenntað fólk.

Ég hvet þig kjósandi góður til að hitta frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins á næstu dögum á kosningaskrifstofu okkar að Hafnargötu 90 og fá svör við þeim spuningum sem á þér brenna. Við höfum náð góðum árangri á mörgum sviðum og trúum því að stóru atvinnuverkefnin í Helguvík skili sér á næstu misserum. Til þess fylgja þessum verkefnum eftir þarf Sjálfstæðisflokkurinn að fá sterkt umboð í kosningunum 31.maí.

Ingigerður Sæmundsdóttir,
frambjóðandi D-lista Sjálfstæðisflokksins

Bílakjarninn
Bílakjarninn