HSS
HSS

Aðsent

Atvinna
Föstudagur 16. september 2011 kl. 10:29

Atvinna

Hún er svört skýrslan um atvinnu- og menntunarleysi á Suðurnesjum. Að minni hyggju snúast málin um þá orku sem býr í Suðunesjamönnum. Og þá er ég ekki að tala um hveri. Frá því að ég fluttist til Keflavíkur árið 1963 hef ég fundið fyrir þessari gífurlegu orku sem einkennir fólk, skapandi og hugmyndaríkt en leiðist almennt skólaseta.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Vita skulum við að það er ekki allt fengið með lestur á bók. Hér getur svo margt annað blómstrað eins og lista-, verk- og iðnmennt. Það þarf ekki annað en að líta á sýningarsalinn í Bílakringlunni, þar sem listaverk Erlings Jónssonar eru, auk saga iðnaðar í máli og myndum sem þar er til sýnis. Á Ljósanótt var ótrúlegur fjöldi fólks að sýna afrakstur vinnu sinnar, meirihluti heimamenn. Tökum eftir þessu og förum að hlúa að þessu frekar en að skóla fólk til starfa á öðrum stöðum á landinu.


Þessi mikli áhugi á íþróttum sýnir að fólkið hér vill taka til höndum, gera, "aktion"!


Það þarf ekki að byrja svo stórt. Á níunda áratugnum í Danmörku kreppti að og var þá farið í að styrkja einyrkja og smáfyrirtæki. Mörg þeirra uxu og döfnuðu og fóru að veita fleiri vinnu. Þetta ættum við að taka okkur til fyrirmyndar. Byrjum smátt! En byrjum!


Nú, og svo skulum við líta á jarðhitann. Hér er fólk sem klæjar í fingurna að komast ofan í ylvolga jörðina, sá, planta og rækta.


Mér skilst að eldfjallajarðvegur sé góður til ræktunar en kemur ekki að notum hér vegna þess hve gljúpt bergið er og því hripar regnvatnið niður og eftir stendur foksandurinn sem allt eyðileggur. Þeir sem ganga um vindauðnir Reykjaness geta rekist á ótrúlegt plöntulíf sem aðeins þarf smáhjálp til að geta fjölgað sér.


Í þessu sambandi langar mig að benda á aukningu náttúruafurða sem byggja á íslenskum grösum (sem flest eru til hér) og því kjörið að fara að búa í haginn fyrir þann markað sem er rétt við sjóndeildarhringinn.


Hildur Harðardóttir