Átti að verða aðstoðarverslunarstjóri en var rekin

Ég fór svo ekki að vinna aftur fyrr en á Þorláksmessu. Aftur fór ég í vinnu á annan í jólum og alveg fram á fimmtudag. Ég átti að vera í fríi á miðvikudeginum, en þá lenti einn starfsmannanna okkar í bílslysi (utan vinnutíma) og ég fór á Dominos um kl. 21:30 til að klára að loka, gera upp og svoleiðis.
Eftir þetta er ég kölluð inn í Reykjavík á fund. Það var búið að lofa mér fyrir mánuði síðan að ég myndi verða aðstoðarverslunarstjóri í Keflavík og ég hélt náttúrulega að ég væri bara að fara að skrifa undir samninginn, en annað kom á daginn. Ég var rekin!
Eina ástæðan sem mér var gefin fyrir að vera rekin, var að ég sýndi ekki nægilegan áhuga á því að vinna þarna og verða aðstoðarverslunarstjóri.
Ég hef alltaf mætt í vinnu, aldrei fengið áminningar og hef verið að hlaupa í skarðið fyrir alla og ég kann allt þarna í búðinni.
Afhverju er verið að reka fólk sem kann allt og hefur ekkert gert af sér?
Ég er með eina kenningu: Þessi fyrirtæki, sem reka svona staði, vilja bara hafa yngra fólk í vinnu svo þau þurfa ekki að borga þeim eins há laun.
Katrín Aðalsteinsdóttir