Áskorun til vinnuveitenda í Reykjanesbæ!
Vinnan göfgar manninn
Í vikunni bárust bæjarráðum víða um land erindi frá Ríkislögreglustjóra sem hvatti til þess að áhersla væri lögð á að fjölga sumarstörfum fyrir aldurshópinn 16-17 ára.
Þessi hópur fellur oft utan þess sem er í boði á sumrin, eru of gömul fyrir vinnuskólann og of ung fyrir störf sem gera í auknu mæli kröfu um að 18 ára og jafnvel 20 ára aldri sé náð. Samkvæmt upplýsingum frá starfsfólki Tómstundamiðstöðvar Reykjanesbæjar má gera ráð fyrir að um 50 ungmenni á þessum aldri séu án starfs í sumar og hefur vandinn aldrei verið meiri. Sérstaklega er hann áberandi á meðal þeirra sem ekki eiga stórt tengslanet í sveitarfélaginu okkar. Skortur á tengslaneti kemur því miður of oft í veg fyrir að ungmenni fái sömu tækifæri til vinnu og börn “vina og kunningja” okkar.
Umhverfi unga fólksins okkar er svo sannarlega breytt frá því sem var. Við, sem nálgumst miðjan aldur, eigum erfitt með að ímynda okkur hvernig það hefði verið að vera iðjulaus í heilt sumar á þessum aldri. Iðjuleysið er mjög hættulegt þessum hópi. Rannsóknir sýna að börn á þessum aldri eru í sérstökum áhættuhópi varðandi félagslega einangrun, vímuefnanotkun og aðra óæskilega hegðun. Ungmennin velja sér ekki þessa stöðu og það er okkar atvinnurekenda að bæta úr, veita þeim tækifæri til vaxtar og þroska.
Því skora ég á ykkur, kæru fyrirtækjaeigendur og stjórnendur fyrirtækja, að bæta við, þó ekki væri nema hluta-sumarstarfi í nokkrar vikur, og bjóða ungmenni sem ekki hefur fengið starf, að starfa hjá ykkur.
Undirrituð tekur fagnandi á móti lausum störfum og kemur á tengingu við efnilegu ungmennin sem eru á skrá hjá Tómstundamiðstöð. Vinsamlega athugið að þetta er ekki verkefni á vegum Reykjanesbæjar, heldur viðleitni mín sem íbúa, að hreyfa við stöðunni með þessari áskorun.
Þitt fyrirtæki getur haft ómetanleg langtímaáhrif á velferð ungmenna í Reykjanesbæ!
Helga Jóhanna Oddsdóttir
Íbúi og bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ
[email protected]
s. 860-5212