Áskorendaleikur Virkjunar
Atafl er postuli maí mánaður. Fyrirtækið tekur að sér að styrkja Virkjun með kaffi og vöfflur í maí mánuði. Þór Helgason hjá Atafli skorar á VOCAL Restaurant Flughóteli að vera postuli júní mánaðar.
Leitin að „Postulunum 12" heldur áfram hjá Virkjun mannauðs á Reykjanesi, sem staðsett er á Ásbrú. Postularnir styrkja starfsemi Virkjunar með því að leggja til kaffi í einn mánuð og bjóða upp á vöfflur tvisvar í viku þann mánuð sem fyrirtækið sér um kaffið. Ef þitt fyrirtæki hefur áhuga á að verða postuli fyrir Virkjun þá væri það vel þegið og viðkomanid getur haft samband við Gunnar Halldór Gunnarsson í síma 773-3310
Samkaup hf. riðu á vaðið og styrktu Virkjun um kaffi og vöfflur í marsmánuði og skoruðu á ÍAV-þjónustu að taka að sér að bjóða upp á kaffi og vöfflur í apríl sem síðan skoruðu á Atafl. Vöfflukaffið í Virkjun er á þriðjudögum kl. 14:30 og á fimmtudögum kl. 10:30. Allir ávallt velkomnir.
Verkefnin framundan hjá Virkjun eru bæði margþætt og mörg og nú ríður á að við tökum höndum saman svo Virkjun megi verða sá öflugi vettvangur fyrir atvinnuleitendur sem svo sannarlega er þörf á. Hlutverk Virkjunar er að verða ein allsherjar Virknimiðstöð, auka á virkni atvinnuleitenda og stuðla að því að þeir geti annaðhvort farið af stað sjálfir með atvinnusköpun eða komist í starf þegar tækifæri opnast. Gott er að fylgjast með starfsemi Virkjunar á virkjun.net og einnig erum við á Facebook; Virkjun mannauðs á Reykjanesi. Opið er alla daga vikunnar frá 09:00 til 16:00.
Frá Virkjun.