Árni Sigfússon og Geysir Green Energy
Það er enginn vafi á því að atburðarás síðustu daga í málum Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja, hófst þegar Árni Sigfússon helsti tals- og baráttumaður Geysis Green hóf yfirferð með þeim Geysis mönnum um sveitafélög á Suðurnesjum og tryggði að þau seldu sinn hlut í Hitaveitunni til Geysis Green. Einnig lagði hann það til í bæjarstjórn Reykjanesbæjar þann 2. júlí 2007 eftirfarandi tillögu um að Reykjanesbær nýtti forkaupsrétt sinn í hlut ríkisins til þess að geta selt Geysi Green.
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar ákveður að nýta sér forkaupsrétt að hluta ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja(15,203%) og hyggist fullnýta rétt sinn ef aðrir aðilar falla frá forkaupsrétti.
Reykjanesbær telur þó eðlilegast að hæstbjóðandi í hlut ríkisins í opnu útboði, Geysir Green Energy, eignist hlutinn og gerist þannig að aðili að Hitaveitu Suðurnesja.
Var tillaga þessi samþykkt af sjálfstæðismönnum í bæjarstjórn 7 atkvæði á móti 4 hjá minnihlutanum. Var þá gengið út greypum okkar tækifæri til þess að eignast meirihluta í Hitaveitu Suðurnesja.
Á sama fundi lagði A-listinn fram eftirfarandi bókun:
Bæjarfulltrúar A-lista samþykkja að Reykjanesbær beiti forkaupsrétti vegna sölu á 15,203% hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja samkv. samþykki félagsins.
Nauðsynlegt er að nýta tímann framundan til þess að skapa sátt milli hluthafa, um eignarhlutföll innan fyrirtækisins, svo að ekki verði hægt í krafti sterkra eignarstöðu, að ganga fram hjá hagsmunum minni eigenda. Þeir aðilar sem lýst hafa áhuga sínum á að eiga hlut í Hitaveitu Suðurnesja geta með aðkomu sinni styrkt stöðu hennar til framtíðar og því mikilvægt að næsta skref tryggi að svo megi verða.
Ekki þarf á þessu stigi að taka afstöðu til með hvaða hætti forkaupsréttur sem hefur skapast, vegna sölu annarra hluthafa verði nýttur, en bæjarfulltrúar A-listans telja mikilvægt og leggja áherslu á að Hitaveita Suðurnesja áfram í meirhlutaeigu almennings svo að áfram verði hægt að tryggja lágt orkuverð á Suðurnesjum.
Eins og menn sjá þá ber Árni Sigfússon alla ábyrgð á þeirri stöðu, að við Suðurnesjamenn höfum misst yfirráð í Hitaveitu Suðurnesja.
Eftir standa tvær spurningar – var bæjarstjóri Reykjanesbæjar með í ráðum við að tryggja einkaaðilum meirihluta í orkufyrirtækjum eða var hann bara plataður af þeim?
Ólafur Thordersen
Bæjarfulltúi A-listans í Reykjanesbæ