Árni Ragnar formaður sjávarútvegsnefndar
Tilkynnt var um kosningu í fastanefndir á Alþingi í morgun og var Árni Ragnar Árnason þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi kosinn formaður sjávarútvegsnefndar. Aðrir þingmenn úr Suðurkjördæmi voru kjörnir í sjávarútvegsnefnd, þeir Jón Gunnarsson Samfylkingu og Magnús Þór Hafsteinsson Frjálslynda flokknum. Nú fara fram umræður um fjárlög fyrir árið 2004 á alþingi.