Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Árni kastar steini úr glerhúsi
Föstudagur 7. desember 2007 kl. 16:13

Árni kastar steini úr glerhúsi

Í umræðum á Alþingi Íslendinga 6. desember sl. varð Bjarna Harðarsyni þingmanni Framsóknarflokksins á mismæli sem hann leiðrétti samdægurs á Alþingi, meira að segja í ræðustól alþingis, strax sama dag.

Árni Sigfússon bæjarstjóri hunsar þessa leiðréttingu þingmannsins á sínum mismælum og sakar m.a. Bjarna um að segja ósatt og krefst þess að þeir leiðrétti ósannindin í sinn garð.

Þessi viðbrögð Árna eru með ólíkindum, ekki síst í ljósi þess að 8. nóvember sl. birtist grein eftir Árna Sigfússon í Víkurfréttum þar sem hann sakar þrjá bæjarfulltrúa A-listans í Reykjanesbæ, (Eysteinn Jónsson, Guðbrand Einarsson og Ólaf Thordersen), um að vera að bera út lygasögur um tengsl Árna við fjármálastofnanir og aðra. Ólafur Thordersen spurði bæjarstjóra um þetta á bæjarstjórnarfundi og ákvað bæjarstjórinn að svara ekki.

Ef Árni fer fram á að ósannindi eða öllu heldur mismæli séu löguð, hvað eigum við þrír að gera ?

Það að vera ásakaður opinberlega af bæjarstjóra Reykjanesbæjar, um að vera bera út lygasögur er ærumeiðandi og ber að líta á þessi ummæli sem slík. Árni ætti að líta sér nær áður en hann kastar steini úr glerhúsi.

Ólafur Thordersen
Guðbrandur Einarsson
Eysteinn Jónsson
Bæjarfulltrúar í Reykjanesbæ
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024