Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Árni biðjist afsökunar eða segi af sér
Föstudagur 5. apríl 2013 kl. 12:38

Árni biðjist afsökunar eða segi af sér

Nú er það staðfest að Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar hefur brotið stjórnsýslulög og samþykktir Reykjanesbæjar þegar hann ákvað að leggja ekki fyrir bæjarráð innsend drög að viljayfirlýsingu um uppbyggingu innviða í Helguvík og Reykjanesbæ frá fjármála- og efnahagsráðherra, Katrínu Júlíusdóttur f.h Ríkisstjórnar Íslands.

Að undirritaður, fulltrúi kjósenda í Reykjanesbæ, bæjarráðsfulltrúi þurfi að lesa það í fjölmiðlum að Ríkisstjórn Íslands hafi nú þegar lagt fram drög að viljayfirlýsingu til umræðu í bæjarráði og að henni hafi ekki verið svarað eða kynnt fyrir kjörnum fulltrúum er til háborinnar skammar.

Það er ekki hlutverk bæjarstjóra að taka ákvörðun um svona stór mál án þess að ráðfæra sig við Bæjarstjórn og Bæjarráð. þetta er ekki einkamál Árna Sigfússonar né meirihluta sjálfstæðismanna í Bæjarstjórn Reykjanesbæjar. þetta er alvarlegt brot á stjórnsýslu og ekki í fyrsta sinn sem bæjarstjórinn verður uppvís að slælegum vinnubrögðum.

það er þyngra en tárum taki að hlusta á bæjarstjóra Reykjanesbæjar, Árna Sigfússon, kenna öðrum um erfiða stöðu Reykjanesbæjar og Helguvíkur. það er alltaf öðrum um að kenna og aldrei honum sjálfum sem leitt hefur Reykjanesbæ í hinar mestu ógöngur með óráðsíu og villtum fjárfestingum.

Nú á Árni Sigfússon að biðjast afsökunar á framferði sínu eða að segja af sér sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar.

Friðjón Einarsson,
Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024