Árangur - reynsla - framtíðarsýn
- Aðsend grein frá Ragnheiði Elínu Árnadóttur
Alþingiskosningar eru í nánd og okkar sjálfstæðismanna bíður það verk að stilla upp öflugum framboðslista hér í Suðurkjördæmi. Ég hef verið oddviti sjálfstæðismanna og leitt flokkinn í kjördæminu í gegnum tvennar kosningar þar sem Suðurkjördæmi hefur orðið eitt sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins á landsvísu. Ég óska nú eftir umboði sjálfstæðismanna til þess að gera það í þriðja sinn og nýta reynslu mína í þágu okkar góða kjördæmis. Á kjörtímabilinu hefur orðið alger viðsnúningur í íslensku efnahags- og atvinnulífi fyrir tilstuðlan skýrrar stefnu ríkisstjórnarinnar. Hallarekstri hefur verið snúið í afgang, skuldasöfnun stöðvuð og skattar lækkaðir. Almenningur nýtur þess í auknum kaupmætti og bættum hag.
Fyrir síðustu kosningar lögðum við áherslu á það að verðmætasköpun væri forsenda velferðar og að við þyrftum að koma atvinnulífinu í gang. Hér á Suðurnesjum var þetta eitt helsta áherslumálið og mikil óþreyja eftir úrbótum.
Það er því einkar ánægjulegt fyrir mig sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra að leggja mín verk og ríkisstjórnarinnar í dóm kjósenda. Á kjörtímabilinu hefur regluverk verið einfaldað, nýsköpun og frumkvöðlastarf tekið stakkaskiptum, fjárfestingar í atvinnulífinu aukist og atvinnuleysi nánast verið útrýmt. Um 17.000 störf hafa orðið til í samfélaginu frá upphafi kjörtímabilsins sem þýðir að á milli 450-500 störf hafa orðið til á hverjum mánuði frá því að þessi ríkisstjórn tók við. Atvinnuleysi á Suðurnesjum er nú komið undir landsmeðaltal í fyrsta sinn síðan að herinn fór. Þegar ríkisstjórnin tók við voru hér 830 manns á atvinnuleysisskrá en eru nú undir 200. Ég hef skrifað undir fimm fjárfestingasamninga á kjörtímabilinu, þar af eru fjórir hér á Suðurnesjum sem þegar hafa skapað fleiri hundruð fjölbreytt störf í örþörungarækt, gagnaverum, fiskeldi og kísiliðnaði. Við upphaf kjörtímabilsins voru um 3000 manns sem höfðu atvinnu af starfsemi flugstöðvarinnar - nú eru þeir 6500. Fyrir þessar kosningar er enginn að tala um atvinnumál - nú eru komin önnur verkefni sem brýnni þörf er á að leysa.
Í öllum þeim málaflokkum sem mér hefur verið falin ábyrgð á hafa verið sett fram skýr markmið til framtíðar sem unnið er eftir í góðu samstarfi við atvinnulífið. Ég er þakklát fyrir þá hvatningu og umsagnir sem ég hef fengið frá foyrstumönnum í ferðaþjónustu, iðnaði, orkugeiranum, nýsköpun, tónlistar- og kvikmyndaiðnaði sem ég hef unnið þétt með á kjörtímabilinu. Það er ánægjulegt að mörg þessara verkefna hafa verið unnin í Suðurkjördæmi. Nú byggjum við ofan á þennan árangur, verðmætasköpunin er nefnilega forsenda velferðar. Á næsta kjörtímabili þarf að sækja fram á þeim sviðum sem við erum öll sammála um að þurfi að efla - við munum leggja alla áherslu á uppbyggingu innviða í grunnstoðum samfélagsins, svo sem samgöngumálum, heilbrigðis- og menntamálum. Þar eru forgangsverkefni okkar Suðurnesjamanna að ljúka við tvöföldun Reykjanesbrautarinnar og bæta öryggi á þeim hættulegu gatnamótum sem við mörg hver förum um á hverjum degi.
Tökum höndum saman sjálfstæðismenn og sýnum hvers við erum megnug og tryggjum góða þátttöku í prókjörinu á laugardag - ég óska eftir stuðningi ykkar í 1. sæti.
Ragnheiður Elín Árnadóttir
iðnaðar- og viðskiptaráðherra