Ár bjartsýni og vonar
Ár bjartsýni og vonar
Síðasta ár hefur fyrir marga verið ár hörmunga og jafnvel vonleysis. Þó hefur margt jákvætt átt sér stað, ótrúlega margt ef miðað er við að viðbrögð og úrræði hafa flest snúist um skaðaminnkun og rústabjörgun. Hvort sem um ræðir einstaklinga, fjölskyldur, fyrirtæki eða stjórnvöld. Ekkert okkar er ósnert af áföllum eða einhverjum sem hefur borið skarðan hlut frá borði.
Fyrir utan viðspyrnuaðgerðir hafa ráðherrar okkar hugað sérstaklega að börnum, tekjulágum og öryrkjum, okkar minnstu bræðrum og systrum sem okkur ber skylda til að sinna vel. Lækkun á greiðsluhlutfalli notenda heilbrigðiskerfisins er umtalsverð og nú síðast lækkun á greiðsluhlutfalli vegna leghálssýna sem allar konur, eða um helmingur þjóðarinnar, nýtur góðs af. Framundan er lækkun komugjalda á heilsugæslu. Þegar kreppir að sjáum við hvað það er mikilvægt að líta til grunnþarfa okkar: Samvera með börnum okkar og stytting vinnuvikunnar, sem þýðir einnig styttri leikskóladvöl og þá lægri dagvistunargjöld, meiri tími til sjálfbærni og umhverfisvitundar. Þar eru ekki háar upphæðir eða langur tími en fyrsta skrefið og þegar á heildina er litið munar um allt.
En kökunni er ekki rétt skipt. Sjálfsagt verður það aldrei þannig en við getum gert okkar besta til að sjá til þess að samfélagið verði réttlátara, að misrétti heyri sögunni til og sameiginlegir sjóðir okkar haldist í okkar eigu og séu til góða fyrir okkur öll. Réttlátara samfélag fyrir alla, þar eigum við spöl eftir að landi. Það á að vera liðin tíð að unga fólkið okkar, sem er að eignast þak yfir höfuðið, mennta sig og ala upp börn, þurfi að velta hverri krónu fyrir sér og stöðugt vona að næstu mánaðarmót komi aðeins fyrr. Að aukavinnu þurfi til að endar nái saman sem leiðir til minni samveru við börnin á þeirra mikilvægustu þroskaárum og stöðugs álags vegna samvirkni alls þessa.
Við verðum að halda áfram að styðja unga fólkið okkar og ein leið er að efla námslánakerfið, minnka greiðsluhlutfall við húsnæðiskaup og uppeldi barna, styðja við menningu, listir, tómstundastarf og efla nýsköpun. Fátækt, í hvað mynd sem hún er, á einnig að heyra sögunni til, þess vegna þurfum við jafnframt að styðja öryrkja og þá efnalitlu af mannvirðingu. Við eigum nefnilega öll rétt á mannsæmandi lífi, tómstundum og tilveru þar sem vonin ríkir. Slíku mun félagshyggjustjórn alltaf standa fyrir. En til þess þurfum við að ná mörgum í okkar lið, við þurfum að landa stórum hluta þingsæta og ná að hafa áhrif í sem flestum ráðuneytum og stjórnum. Aðeins þannig höfum við raunveruleg áhrif.
Gleðilegt nýtt ár bjartsýni og kosninga!
Hólmfríður Árnadóttir,
formaður svæðisfélags VG á Suðurnesjum