Annáll frá unglingastarfi knattspyrnudeildar Reynis 2005

Þökkum Víði í Garði og UMFG fyrir samstarfið á árinnu og vonandi á það eftir að leiða til áframhaldandi árangurs á komandi árum.
Barna- og unglingastarf drengja hjá knattspyrnudeild Reynis hefur verið í samstarfi við knattspyrnudeild Víðis síðustu þrjú ár og hefur gengið vel. Hver hefði trúað því að þessir fyrrum erkifjendur ættu eftir að vinna saman að því að skora í sama markið? Út frá þessari reynslu var farið að vinna að samstarfi með stúlknaliðin en þá bættist knattspyrnudeild Ungmennafélags Grindavíkur í leikinn. Nú spila þessi þrjú félög undir heitinu GRV. Það samstarf hefur gengið framar vonum og hafa stúlkurnar verið með topplið í íslenskri knattspyrnu í sumar.
Árangur þessa samstarfs hefur ekki leynt sér. Bæði drengja- og stúlknaliðin hafa náð framúrskarandi árangri. Uppbygging unglingastarfsins hefur sjaldan eða aldrei verið meiri. Nú hefur 2. flokkur kvenna verið settur á laggirnar og eiga ungar knattspyrnustúlkur nú jafna möguleika á við drengi til þess að stunda áhugamál sitt og vinna að því að verða afrekskonur, ef það er þeirra vilji.

Þó verðlaunagripir veiti að sjálfsögðu ánægju og gleði má segja að aukinn iðkendafjöldi sé mesta ánægjuefnið.
Forvarnargildi íþróttaiðkunar er öllum ljóst. Unglingar sem stunda íþróttir leiðast síður út í fíkniefnaneyslu eða afbrot. Styrkur íþróttaiðkunar er mikill, hún eykur félagsþroska, sjálfstraust og einbeitingu. Auk þess sem unglingarnir læra aga, umgengisreglur, virðingu gagnvart náunganum og margt fleira.

Ykkar stuðningur er okkar styrkur,
Fyrir hönd unglingaráðs Reynis,
Þráinn Maríusson