HSS
HSS

Aðsent

Annað hvort að halda á börnum eða kyssa beljur
Sunnudagur 29. október 2006 kl. 17:14

Annað hvort að halda á börnum eða kyssa beljur

Róbert Marshall, frambjóðandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, er með kosningaskrifstofu á hjólum og fer þannig allra ferða sinna um kjördæmið sem er langt og stórt. Hann var á Suðurnesjum í rigningunni á föstudaginn og heilsaði upp á fólk á öllum aldri og hlustaði á skoðanir þess. Víkurfréttum gafst tækifæri til að smella af kappanum þegar hann gerði stutt stopp við Samkaup í Njarðvík. Í myndarökunni vatt sér að honum ung móðir og sagði að annað hvort ætti að mynda frambjóðendur með lítið barn eða við það að kyssa beljur. Róbert tók við barninu og myndin var tekin.

Á vefsíðu sinni, marshall.is, segir Róbert um ferðalag síðustu daga:
„Kominn heim eftir nánast viku útlegð. Hef á síðustu sjö dögum farið til Eyja, Reykjanesbæjar, Sandgerðis, Garðs, Grindavíkur, Selfoss, Hellu, Hvolsvallar, Víkur, aftur til Eyja og þaðan á Selfoss, Flúðir, Laugarvatn, aftur Selfoss og svo Vík og Klaustur og alla leið á Höfn (var þar líka á fimmtudaginn fyrir viku). Tók svo annan rúnt um allt Reykjanes í gær. Held nú í dag til Hveragerðis svo Þorlákshafnar og tek svo bátinn til Eyja.
Síðasta vikan framundan. Nú verður gefið í.
Leiðinlegt að nota klisjur: en ég finn fyrir meðbyr. Hef nálgast þetta verkefni með það í huga að hafa gaman af því og tekist það. Jákvæðni, sköpunargleði og virkt ímyndunarafl er lykillinn að árangri. Í hverju sem er.“

 

VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Bílakjarninn
Bílakjarninn