Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Andlegt jafnvægi, og mataræði.-   Hefur það áhrif á heilsu okkar?
Þriðjudagur 18. september 2007 kl. 09:11

Andlegt jafnvægi, og mataræði.- Hefur það áhrif á heilsu okkar?

Þriðjudaginn 25. september kl. 20 mun Krabbameinsfélag Suðurnesja  og Sunnan 5, stuðningshópur krabbameinsgreindra og aðstaðenda- halda opið hús að Smiðjuvöllum 8 Í húsi rauða krossins.
Gestur kvöldsins verður Matti Ósvald -heildrænn heilsufræðingur sem  mun flytja fyrirlesturinn :  Andlegt jafnvægi, og mataræði.-   Hefur það áhrif á heilsu okkar?

Hann mun fjalla um :

4 einföld atriði sem eru algjör undirstaða heilsunnar.

Hvað er uppsöfnuð þreyta, verkir og vöðvabólga í alvörunni?

Áhrif streitu á niðurbroti heilsunnar, og mótefnið við því.

3 atriði sem stuðla strax að uppbyggingu heilsunnar innan frá.

Hvers vegna mörgum nútímamanninum reynist svo erfitt að öðlast hugarró?


Hann mun einnig kenna okkur:

Einföld skref til að fullhlaða batteríið.

Einfalda aðferð til að kyrra hugann og auka innra jafnvægi ...

... og vonandi margt fleira skemmtilegt og nýtanlegt : ).



Matti Ósvald  útskrifaðist árið 1992 frá International Professional School of Bodywork, í San Diego, Kaliforníu. Hann hefur tekið “heilsu og lífstílsviðtöl” við þúsundir íslendinga undanfarin 15 ár.

Þeir sem áhuga hafa á heilsutengdum málefnum eru hvattir til að mæta.

Allir eru velkomnir.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024