Andlát - Ingibjörg Sigurðardóttir
Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Ingibjörg Sigurðardóttir
Skáldkona frá Króki í Skagahreppi, Austur-Húnavatnssýslu
síðast til heimilis að Suðurgötu 17 í Sandgerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi í Garði, föstudaginn 17. júlí.
Útför fer fram frá safnaðarheimilinu í Sandgerði, föstudaginn 24. júlí
kl. 14:00. Ingibjörg verður jarðsett í Hofskirkjugarði á Skagaströnd samdægurs.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeir sem vilja minnast hinnar látnu er bent á Hjálparstarf kirkjunnar, reikningsnúmer: 1150-26-27, kt. 450670-0499
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn
---
Vegna mistaka birtist þessi tilkynning ekki í Víkurfréttum í dag. Af þeim sökum er hún birt hér á vf.is.