Alþjóðleg ráðstefna um nýsköpun kvenna í Hörpu
Samtök frumkvöðlakvenna halda glæsilega alþjóðlega ráðstefnu, EUWIIN 2011, í tónlistar- og ráðstefnuhúsinu Hörpu þann 7.-8.september næstkomandi, og er gert ráð fyrir að minnsta kosti 300 manns víðsvegar að úr heiminum. Ráðstefnan átti að vera í maí en frestaðist vegna eldgoss í Grímsvötnum.
Tilgangur ráðstefnunnar er að vekja athygli á uppfinninga- og frumkvöðlastarfsemi kvenna og vonast er til að það muni stuðla að betri tækifærum kvenna og auka áhugann á málefninu. Karlar eru sérstaklega hvattir til þess að mæta og taka þátt og kynna sér hvað konur eru að finna upp, víðs vegar í heiminu.
Dorrit Moussaieff, forsetafrú Íslands er verndari ráðstefnunnar.
Borgarstjórinn í Reykjavík mun opna ráðstefnuna með móttöku í Ráðhúsi Reykjavíkur þann 6. september í samvinnu við 5 sendiherra. Alexandra K. Argunova listakona mun sýna verk sín af þessu tilefni, en hún fékk EUWIIN viðurkenningu 2009 í Helsinki fyrir verkefnið sitt sem varðar menningartengsl Íslands og Yakutíu.
Röð fyrirlestra og pallborðsumræðna munu fara fram í Hörpu dagana 7. og 8. september með stuttum hádegis og kaffihléum þar sem boðið verður upp á létt snarl. Ráðstefnugestir fá að njóta tónlistaratriðis í boði Margrétar Pálmadóttur og Domus Vox.
Ráðstefnan í Hörpu verður fjölmennasta samkoma frumkvöðlakvenna í Evrópu á þessu ári. Það verða fluttir fyrirlestrar þar sem m.a. verður fjallað um hugverkaréttindi, vöruþróun, stofnun fyrirtækja, fjárfestingar, markaðsvæðingu og upplýsingatækni. Tölfræðin sýnir að konur fá 20% af styrkjum sem í boði eru á Íslandi og fá lægri styrk upphæðir. Konur eiga 9% af skráðum einkaleyfum í Evrópu. Konur eiga 20% af fyrirtækjum á Íslandi. Konur eiga 5-15% af tæknifyrirtækjum í Evrópu. Þessar tölur sýna að mikil þörf er á að hvetja konur áfram og að gera þær konur sýnilegar sem framkvæma hugmyndir sínar.
Þeim konum sem tilnefndar verða til viðurkenningar mun gefast kostur á að sýna og kynna verkefni sín eða vörur á ráðstefnunni. Í lok fyrri ráðstefnudagsins verður móttaka í boði Landsbankans og tískusýning í samvinnu við Eskimo og Elite, þar sem íslenskir og erlendir hönnuðir munu sýna glæsilega umhverfisvæna hönnun, undir stjórn breska hönnuðarins Adubayo Jones. Ráðstefnunni lýkur síðan, 8.september með hátíðarkvöldverði í Lava, veitingahúsi Bláa lónsins, þar sem viðurkenningar verða veittar þeim uppfinninga- og frumkvöðlakonum sem þykja hafa skarað fram úr. 10 dómarar frá 6 löndum meta verkefnin.
Félag kvenna í nýsköpun, KVENN, var stofnað árið 2007. Þá komu saman konur sem fengust við nýsköpun á ýmsum sviðum, sumar höfðu fengið alþjóðlegar viðurkenningar og tekið þátt í Nýsköpunarkeppnum og aðrar voru búnar að stofna fyrirtæki um hugmyndir sínar. Það er íslenska tengslanetið KVENN sem ber hitann og þungann af skipulagi þingsins að þessu sinni en félagið á aðild að evrópska tengslanetinu EUWIIN og GWIIN, alþjóðlegu tengslaneti frumkvöðlakvenna, sem teygir anga sína til Asíu, Afríku og Suður-Ameríku.
Fjölmennar ráðstefnur EUWIIN, í Berlín 2007 og síðan Helsinki 2009 sýndu, svo ekki varð um villst, að mikil þörf var á tengslaneti á borð við þau sem hér um ræðir enda þykja þau hafa skapað frjóan jarðveg og vettvang fyrir skapandi og hugmyndaauðugar konur.