Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Almannahagsmunum fórnað
Mánudagur 20. janúar 2014 kl. 17:06

Almannahagsmunum fórnað

Öll þekkjum við söluna á Hitaveitu Suðurnesja, dapurlegustu pólitísku mistök sem gerð hafa verið á Suðurnesjum og víðar. Nú er sagan að endurtaka sig.  HS Veitur er verið að selja, svo langt sem lög leyfa.

Bæjarfulltrúar svikið  gefin loforð
Skoðum það nánar hvernig bæjarfulltrúar á Suðurnesjum hafa ráðstafað HS Orku og HS Veitum, fjöreggi okkar allra og svikið gefin loforð.

• Árið 2003 byrjar Reykjanesbær að selja fasteignir sínar. Fljótlega koma fram áhyggjur um að ráðandi hlutur í Hitaveitunni verði einnig seldur. Bæjarfulltrúar meirihlutans í Reykjanesbæ stíga fram og fullvissa íbúana um að ekki standi til að selja hlutinn í Hitaveitunni.

• Árið 2007 byrjar Reykjanesbær að selja hlutinn í Hitaveitunni. Íbúum sagt að þeir þurfi ekki að hafa áhyggjur þar sem bærinn muni áfram eiga ráðandi hlut í Hitaveitunni. Hin sveitarfélögin  selja sína hluti. Íbúar ekki spurðir álits.

• Árið 2009 Reykjanesbær selur allan hlutinn í Hitaveitunni.

• Árið 2010 Magma Energy, kanadískt fyrirtæki orðið eigandi að Hitaveitunni.
Salan á HS var m.a. réttlætt með því að dreifikerfið yrði áfram í eigu sveitarfélaganna undir nafninu HS Veitur.

Skoðum það nánar:

• Árið 2008 HS Veitur stofnað. Í eigu sveitarfélaganna, Hafnarfjarðar og Orkuveitu Reykjavíkur.

• Árið 2013 Reykjanesbær byrjar að selja hlutinn í HS Veitum til Ursusar, félags í einkaeigu.
Hin sveitarfélögin á Suðurnesjum fylgja á eftir. Orkuveita Reykjavíkur hyggst einnig selja hlutinn til Ursusar. Samfylking í Reykjanesbæ  á móti sölu.
Meirihluti Samfylkingar og VG í bæjarstjórn Hafnarfjarðar hafnar sölu á hlut bæjarins.

Farið á bak við lög um  veitufyrirtæki
Í lögum um veitufyrirtæki er kveðið á um að þau verði að vera að lágmarki í 51% eigu opinberra aðila.

Þetta  ákvæði er því miður ekki trygging fyrir því að hluthafar geti gert með sér samkomulag um að ákvörðunarvaldið verði á endanum í höndum einkaaðilans, í þessu tilfelli Ursusar. Margt bendir til þess að það sé einmitt ætlunin hvað varðar HS Veitur. Þessu neita bæjarfulltrúar en þeir hafa neitað ýmsu áður, eins og sjá má hér að ofan.  Eigum við að treysta því að meirihlutavaldið í HS Veitum verði áfram hjá Reykjanesbæ, alveg eins og við treystum því að meirihlutinn í Hitaveitunni yrði aldrei seldur?

Það er harla ólíklegt að einkaaðili vilji leggja í svo stóra fjárfestingu nema tryggt sé að hann hafi afgerandi ákvörðunarvald í fyrirtækinu.

Sala HS vakið undrun erlendis
Þess má geta hér að árið 2010 átti ég fund með bandarískum öldungadeildarþingmanni sem er jafnframt sérfræðingur í orkumálum í Bandaríkjunum. Salan á HS bar þar á góma. Fullyrti hann að sala, á opinberu orkufyrirtæki í grunnþjónustu, til einkaaðila hefði aldrei fengið hljómgrunn þar vestra. Það er athyglisvert í sjálfu mekka kapítalismans.

Almannahagsmunum fórnað
Ég fullyrði að mikill meirihluti íbúa á Suðurnesjum hefur frá upphafi verið andsnúinn þessum vanhugsuðu gjörningum bæjarfulltrúa. Undirskriftarlistar gegn sölu voru hundsaðir og íbúar aldrei spurðir álits. Orðið íbúalýðræði hefur aldrei náð lengra en í kosningabæklinginn. HS Orka og HS Veitur eru fyrirtæki sem veita grunnþjónustu, sem enginn getur verið án og samkeppni er engin, eins og í sölu og dreifingu á heitu og köldu vatni. Þessi fyrirtæki voru stofnuð af sveitarfélögunum, í eigu þeirra og þar með íbúanna. Þau átti aldrei að selja. Hagnaður HS Veitna, eftir skatta, fyrir árið 2012 var 442 milljónir. Í ársreikningi kemur fram að fjárhagsstaðan sé sterk og horfur góðar. Hvers vegna þarf að selja svona gott fyrirtæki í eigu almennings?  Almannahagsmunum hefur verið fórnað á altari skammtímagróða.

Birgir Þórarinsson
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024