Algjörlega rangt með farið!
Aðstandendur áskorunar á orkuauðlindir.is þau Björk Guðmundsdóttir o.fl. segja ósatt um mikilvæga þætti þegar þau fullyrða um aðkomu Reykjanesbæjar að málefnum HS orku hf. í dreifibréfi sem þau hafa sent frá sér í dag.
Þau fullyrða að „tekjur Reykjanesbæjar af því að leigja HS Orku afnot af auðlindinni nægja ekki fyrir afborgunum af lánum sem bæjarfélagið tók til þess að kaupa aðra eigendur út!“ Þetta er með öllu ósatt því Reykjanesbær keypti engan út í viðskiptum með HS orku og því er ekki um neinar afborganir af lánum að ræða vegna þessa.
Þá er gefið í skyn að afborganir af skuldabréfum sem gefin voru út gefi af sér 1,53% vexti. Þetta eru einnig ósannindi í tilviki Reykjanesbæjar. Í því skuldabréfi sem GGE greiddi sem hluta af greiðslum fyrir eignarhlut Reykjanesbæjar í HS Orku voru greiddir vextir 4,3% á síðasta ári, þ.e. 272 milljónir kr. af 6,3 millj. kr. bréfi. Athugið; þetta eru tekjur til Reykjanesbæjar, ekki útgjöld!
Það er mjög miður að Björk Guðmundsdóttir, í ljóma frægðar sinnar, láti slíka útreikninga og fullyrðingar frá sér um allan heim. Að auki hefur ítrekað verið reynt að halda því fram af henni og félögum hennar að auðlindin undir virkjunum HS orku sé eign HS orku. Þetta hefur líka verið leiðrétt og er þá reynt að gera lítið úr þeirri staðreynd, með því að vísa til að 65 ára leigutími gegn auðlindagjaldi til bæjarfélagsins og ströngum ríkisheimildum og ríkiseftirliti jafngildi eign. Þó hefur ítrekað komið fram að bæði HS orka sem leigjandi auðlindar og Reykjanesbær sem eigandi auðlindar hafa lýst yfir vilja til að skoða styttingu á þeim tíma. Ennfremur hefur Reykjanesbær boðið ríkinu að kaupa auðlindina svo hún verði í þjóðareign.
Forsvarmenn Reykjanesbæjar búast engan vegin við að þessi hópur sé reiðubúinn að leiðrétta þessar röngu fullyrðingar eða biðjast afsökunar á þeim og því er þessum leiðréttingum komið á framfæri við fjölmiðla. Lítið sveitarfélag á Íslandi á erfitt með að bera hönd fyrir höfuð sér þegar heimsfrægur söngvari kemur röngum upplýsingum um allan heim. Þó er treyst á að Íslendingar viti hið sanna í málinu!
Böðvar Jónsson, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar
Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar