Föstudagur 25. október 2002 kl. 10:10
Áfram verði unnið í núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi

Félagsfundur Félags ungra Framsóknarmanna í Reykjanesbæ haldin í Reykjanesbæ 18. október 2002 lýsir yfir vilja til að áfram verði unnið í núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi meðan engar aðrar betri lausnir eru í sjónmáli. Hins vegar skorar fundurinn á Sjávarútvegsráðuneytið að láta gera úttekt á sóknardagakerfi Færeyinga. Hvernig staðan er þar og hvernig það yrði í framkvæmd á Íslandi, m.t.t. dagafjölda og úthlutun daga. Fundurinn skorar jafnframt á Sjávarútvegsráðuneytið að taka aftur upp línu-tvöföldun / ívilnun fyrir dagróðrabáta þar sem lína er beitt í landi, t.d. að 80% af þvi sem veitt er dragist af aflaverðmæti viðkomandi báts. Fundurinn telur að með þessu móti sé verið að stuðla að hagkvæmari nýtingu nytjastofna og tryggja trausta atvinnu í byggðum landsins. Fundurinn telur að með þessu móti sé hægt að auka útflutningsverðmæti nytjastofna.