Áfram ábyrg – málþing um börn og skilnað
„ Áfram ábyrg – málþing um börn og skilnað“ er yfirskrift málþings sem haldið verður í Keflavíkurkirkju þann 23. febrúar kl. 10 – 16.
Málþingið er öllum opið og nýtist sérstaklega þeim er vinna að málefnum barna og fjölskyldna.
Efnið tengist auk þess mörgum hópum og sviðum í samfélaginu en málþing af þessum toga hefur ekki farið fram áður hérlendis.
Málþingið er samvinnuverkefni Keflavíkurkirkju, Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar og Kjalarnessprófastsdæmis. Tilgangur þess er að varpa ljósi á og skapa umræður um vanda þann sem steðjar að börnum í skilnaðarmálum og leita leiða til þess að bregðast við honum. Nýjustu rannsóknir á þessu sviði verða kynntar en á málþinginu kemur saman fagfólk sem vinnur með fjölskyldur og börn í þessum aðstæðum.
Aðalfyrirlesarar eru þær Erika Beckmann sálfræðingur og forstöðumaður fjölskylduþjónustu lúthersku kirkjunnar í Marburg í Þýskalandi og dr.
Sigrún Júlíusdóttir prófessor í félagsráðgjöf. Aðrir fyrirlesarar eru: Thomas Mainz, sálfræðingur og samstarfsmaður Eriku Beckmann; Álfgeir Logi Kristjánsson, aðjúkt við KHÍ og Lýðheilsudeild HR; Benedikt Jóhannsson, sálfræðingur og starfsmaður Fjölskylduþjónustu kirkjunnar; Ingibjörg Bjarnadóttir hdl og umsjónarmaður Sáttamiðlunar og Valgerður Halldórsdóttir, kennari og félagsráðgjafi MA og formaður Félags stjúpfjölskyldna. Pallborðsumræður verða í lok ráðstefnunnar.
Þá flytur Edda Björgvinsdóttir, leikkona, þætti úr leikritinu, Alveg brilljant skilnaður.
Laugardaginn 24. febrúar frá kl. 10-12:30 verða myndaðir vinnuhópar undir stjórn Eriku Beckmann og Thomas Mainz undir yfirskriftinni Úrræði í málefnum skilnaðarbarna.
Málþingið verður haldið í Keflavíkurkirkju 23. kl. 10-16 og vinnuhópar verða á sama stað laugardaginn 24. febrúar frá kl. 10-12:30.
Kostnaður er kr. 5.000,- á hvorn daginn en kr. 7.000,- ef báðir viðburðir eru sóttir. 50% námsmannaafsláttur er veittur gegn framvísun skírteina. Innifalið í verði eru kaffiveitingar og fundargögn.
Skráning fer fram á heimasíðu Reykjanesbæjar http://reykjanesbaer.is