Afhverju er svona mikið af tómum húsum
– í bænum okkar og hvernig breytum við því?
Á laugardaginn verður Friðjón Einarsson með innlegg um húsnæðismál í Reykjanesbæ á laugardagsfundi Samfylkingarinnar og óháðra þar sem hann fer yfir stöðuna, verkefnin og mögulegar lausnir.
Laugardagsfundurinn er liður í málefnavinnu fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar hjá Samfylkingunni og og óháðum. Við hittumst á hverjum laugardagsmorgni yfir kaffi og með því í salnum okkar að Víkurbraut 13 við Keflavíkurhöfn milli kl. 10.30-12.00, vinnum hugmyndavinnu og leggjum línur. Allir áhugamenn um bæjarmál eru velkomnir sem fyrr.
Eysteinn Eyjólfson fór yfir það hvernig við getum gert stjórn bæjarins gegnsærri og lýðræðislegri á síðasta laugardagsfundi. Upplýsandi glærur sem fylgdu innleggi hans má sjá hér http://www.slideshare.net/eysteinne/mars-2014-lydraedivefur
Niðurstaða síðasta laugardagsfundar var sú að það er ekkert mál að gera bæinn okkar lýðræðislegri – við þurfum bara að breyta áherslum í bæjarstjórn. Og það geta bæjarbúar gert í kosningunum 31. maí!
Samfylkingin og óháðir