Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Af hverju skiptir fjárhagur Reykjanesbæjar svona miklu máli?
Þriðjudagur 18. apríl 2006 kl. 09:42

Af hverju skiptir fjárhagur Reykjanesbæjar svona miklu máli?

Margir eru eflaust orðnir hundleiðir á þessu eilífa tuði í stjórnarandstöðunni í Reykjanesbæ um fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar. Mörgum finnst þetta kannski ekki skipta miklu máli og hafa meiri áhuga á umhverfismálum, fegrun bæjarins, þjónustu leik-og grunnskólanna, málefnum aldraðra, félagsþjónustunni, tómstunda-, menninga- og íþróttamálum, og síðast en ekki síst ATVINNUMÁLUM, en ég er einn þeirra.

Framtíðin er björt
Ég hef miklar vonir um að framtíð okkar hér í Reykjanesbæ sé björt. Hvergi á landinu á eftir að verða eins mikil vöxtur í atvinnulífinu og hér næstu 20 árin, öll skilyrði til uppbyggingar öflugs atvinnulífs eru fyrir hendi, einungis er spurning um hvernig við nýttum þau tækifæri sem eru fyrir hendi. Markmið okkar hlýtur að vera að gera betur við fjölskyldurnar í bæjarfélaginu. Til þess að það verði, þarf að vera hægt að auka þjónustuna og fjölga atvinnutækifærum á ýmsum sviðum. Fráfarandi meirihluti Sjálfstæðismanna hefur því miður gert það að verkum að það mun verða ákaflega erfitt sökum lélegrar stjórnunar á fjármálum sveitarfélagsins og endalausum hallarekstri. Fjármagn er einfaldlega ekki til og hafa íbúar fengið smá keim af því undanfarið.

Fráfarandi meirhluti ekki staðið sig
Því miður hefur fráfarandi meirihluti í Reykjanesbæ ekki staðið sig sem skyldi og stöndum við nú nánast úræðalaus gagnvart brotthvarfi Varnarliðsins. Enginn atvinnuþróun hefur farið fram hjá Reykjanesbæ ef undan er skilið stálpípuverksmiðja sem aldrei kom og víkingaheimar sem áætlað er að skili 6 stöðugildum með ærnum tilkostnaði. Staðan í dag er einfaldlega sú að við stöndum frami fyrir miklu atvinnuleysi með lamaðan bæjarsjóð sem hefur enga burði né getu til að ráðast í nauðsynlega nýsköpun í atvinnulífinu sökum bágrar fjárhagsstöðu og verðum við því að reiða okkur á aðgerðir að hálfu ríkisstjórnarinnar.

Þetta er í raun mjög einfalt, við greiðum útsvar svo framarlega sem við höfum atvinnu, þjónustugjöld og fasteignaskatta. Þeir sem stjórna bænum sjá um að ráðstafa og skipta þeim peningum. Við fáum í staðinn m.a. menntun fyrir börnin okkar, leikskólaþjónustu, tómstundar-, íþrótta- og menningarþjónustu. Lýsandi dæmi um hvernig slæm fjárhagsstaða kemur niður á íbúunum er ítrekuð hækkun á leiksskólagjöldum og fasteignagjöldum í tíð fráfarandi meirihluta Sjálfstæðismanna. Fleiri dæmi mætti nefna en grundvallaratriðið er að án góðrar fjármálastjórnunar er ekki hægt að efla þjónustu sveitarfélagsins né stuðning við atvinnuþróun á svæðinu.

Arngrímur Guðmundsson
skipar 10. sætið á A-listanum í Reykjanesbæ
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024