Þriðjudagur 25. apríl 2006 kl. 09:55
Ættfræðiáhugafólk hittist á bókasafninu
Félagar á Suðurnesjum í Ættfræðifélaginu ætla að hittast á Bókasafni Reykjanesbæjar þriðjudaginn 2. maí kl. 20. Þetta verður síðasti fundur vetrarstarfsins. Allir áhugasamir um ættfræði eru velkomnir.
Nánari upplýsingar gefur Einar Ingimundarson í síma 421 1407.