Félagar af Suðurnesjum í Ættfræðifélaginu ætla að hittast á bókasafninu þriðjudaginn 6. nóvember 2007 kl. 20 og spjalla saman um ættfræði. Allir áhugasamir eru velkomnir. Nánari upplýsingar veitir Einar Ingimundarson í síma 421 1407.
Einnig ætla bókmenntaunnendur að hittast á sama tíma og spjalla saman um áhugaverðar bækur.