Bygg
Bygg

Aðsent

Föstudagur 19. október 2001 kl. 09:28

„Ætlum að bæta okkur“, segir Ellert Eiríksson

Niðurstöður úr Bertelsmannsprófinu hafa verið lagðar fram til upplýsingar en prófið á að varpa ljósi á gerð og framkvæmd stjórnsýslu í Reykjanesbæ. Sama próf hefur verið lagt fyrir vinabæi Reykjanesbæjar á Norðurlöndum en Reykjanesbær hlaut lægstu einkunn í samanburði við norrænu bæjarfélögin. Minnihlutinn benti sérstaklega á lágt skor í starfsmannastjórnun en meirihlutinn sagði að prófið hentaði að sumu leyti ekki íslenskum aðstæðum þar sem gildin hér, og samfélagsgerð, væri ekki alltaf þau sömu hér og á hinum Norðurlöndunum. Ellert Eiríksson bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir að farið verið nákvæmlega yfir niðurstöður prófsins á næstu vikum og um áramót verði lagðar fram tillögur til úrbóta.

Fengum falleinkunn
Kristján Gunnarsson (S) tók málið upp á fundi bæjarstjórnar sl. þriðjudag og sagði að Reykjanesbæjr hefði fengið falleinkunn á prófinu, hefði t.d. bara skorað 33 af 100 mögulegum í starfsmannastjórnun. „Niðurstöður prófsins voru kynntar fyrir okkur sveitarstjórnarmönnum á Hótel Sögu. Ellert hefur verið að belgja sig yfir góðri stjórnun og kjaftaði sig klókindalega út úr þessum niðurstöðum á fundinum. Hann segir að þetta sé óhentugt próf fyrir okkur. Mín skoðun er sú að við eigum ekki að gagnrýna reglur prófsins heldur að laga það sem laga þarf“, sagði Kristján.

Ætlum að bæta okkur
Ellert svaraði Kristjáni og sagðist ekki kveinka sér undan reglunum en menn væru sammála um að laga þyrfti viðmið prófsins að íslenskum gildum, þar sem þau væru ekki alltaf þau sömu og í hinum Norðurlöndunum. Hann benti einnig á að nauðsynlegt væri að fleiri íslensk sveitarfélög tækju prófið en þá fengist góður samanburður. „Við erum ekki að fela neitt varðandi niðurstöður Bertelsmannsprófsins. Þetta eru opinber gögn og við ætlum að bæta okkur“, sagði Ellert.

Notum prófið til viðmiðunar
Jóhann Geirdal (S) tók einnig til máls og benti á að mælikvarðar á prófinu væru ekki endilega í samræmi við þá samfélagsgerð sem Reykjanesbær vill laga sig að. „Við verðum að skoða hvernig við viljum sjá okkar samfélag þróist og nota Bertelsmannsprófið til viðmiðunar og sem hjálpartæki við stjórnsýslu“, sagði Jóhann. Ellert sagðist vera sammála Jóhanni og að stjórnsýslan yrði bætt í samræmi við óskir bæjarbúa og starfsmanna bæjarins. „Þegar því er lokið, þá höfum við náð takmarkinu“, sagði Ellert.
Bílakjarninn
Bílakjarninn