Ætlar Oddný að senda 200 nemendur á götuna?
Merkilegt að lesa viðtal við Oddnýju Harðardóttur fv. fjármálaráðherra á vef Víkurfrétta, vf.is, um niðurskurð til Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Efling FS og menntunar á Suðurnesjum var eitt af helstu markmiðum ríkisstjórnarinnar til að koma til móts við ungt atvinnulaust fólk á Suðurnesjum. Af hverju er þá verið að skera niður framlög til FS og senda 200 nemendur á götuna og segja upp 12-15 manns? Svarið er einfalt, það vantar rekstrarfé. Og hvaðan skyldi rekstraféð koma? Það kemur af fjárlögum, og hver skyldi hafa lagt þessi fjárlög fram sem eiga að skerða FS um 200 nemendur? Það var fjármálaráðherrann, Oddný Harðardóttir. Sú sama Oddný og var skólameistari FS og kemur þannig beint í bakið á sínum gamla skóla á eigin heimavelli – Suðurnesjum. Fjármálaráðherrann og skólameistarinn sem lagði fram frumvarp til fjárlaga þar sem gert var ráð fyrir niðurskurðinum til til FS með hörmulegum afleiðingum fyrir nemendur og starfsfólk.
Heldur finnst mér Oddný leggjast lágt þegar hún segir í Víkurfréttum að krefjast þurfi þess af Menntamálaráðuneytinu og FS að tryggja nemendum skólavist. Hún veit að fjárlögin skammta skólanum fjármagn til rekstrarins. Hún sjálf lagði fjárlögin fram – fjárlögin sem skerða starfsemi FS um 200 nemendur og störf 12-15 starfsmanna. Oddný getur ekki vikið sér undan þeirri ábyrgð. Við þurfum alvöru talsmenn Suðurnesja á þing. Fólk sem berst fyrir hagsmunum Suðurnesja en ekki gegn þeim.
Ásmundur Friðriksson.
Býður sig fram í 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi.