Aðventuljós kirkjugarðanna
Þar sem fyrsti í aðventu er að nálgast langar mig til að láta í ljós vonbrigði mín vegna ljósakrossauppsetninguna í kirkjugörðunum í þeirri von um að brugðist verði við og krossar verði settir upp fyrsta sunnudag í aðventu.
Ástvinur okkar fjölskyldunnar hvílir í kirkjugarðinum í Innri-Njarðvík og viljum við hafa ljósakross á leiðinu yfir hátíðarnar og fyrir okkur táknar þessi kross aðventuna, og við erum alls ekki ein um það.
Krossarnir í kirkjugarðinum í Innri-Njarðvík voru sl. jól ekki settir upp fyrr en 18. desember og finnst okkur það full seint! Við vorum mjög vonsvikin. Við fylgdumst með auglýsingum frá öðrum kirkjugörðum og virtust flestir, ef ekki allir, byrja töluvert fyrr en fyrrnefndur garður.
Við veltum því fyrir okkur hvort það sé þá engin sérstök meining fyrir þessum krossum annað en að fá fallegt ljós? Okkur finnst það skrýtið að það sé búið að skreyta bæina og fólk búið að skreyta garðana sína, setja seríur í gluggana og sumir jafnvel búnir að skreyta jólatréin sín áður en ljósakrossarnir eru settir upp á leiðin.
Á hverju ári borgum við vissa upphæð fyrir þá þjónustu sem felur í sér uppsetningu á ljósakrossunum, rafmagn og að passað sé upp á að alltaf sé ljós á krossunum og í fyrra var auðvitað engin undantekning.
Við fórum þann 18. desember, vonsvikin yfir að krossarnir væru settir upp svona seint, létum umsjónarmanninn fá krossinn okkar, greiddum honum fyrir þjónustuna og spurðum hann afhverju þeir væru ekki settir upp fyrr en fengum engin svör. Svo á aðfangadag fórum við að leiðinu með blóm og kerti og blasti þá við okkur heldur leiðinleg sýn - krossinn hjá okkur hafði aldrei verið tengdur við rafmagn og umsjónarmaðurinn var ekki á staðnum til að hjálpa okkur að stinga honum í samband.
Við þurftum að brjótast inn í rafmagnskassann með vasahníf til að koma honum í samband við rafmagn. Þetta sat svolítið í okkur yfir hátíðarnar og við komumst ekki hjá því að hugsa út í hvernær hefði komið ljós á krossinn ef við hefðum ekki komið að leiðinu á aðfangadag.
Við að sjálfsögðu ræddum þetta við umsjónarmanninn sem baðst ekki einu sinni afsökunar á þessum leiðindum.
Við vonum að þeir sem sjá um þessa þjónustu fari nú að huga aðeins meira að þessu og veita þá þjónustu sem fólk er að greiða fyrir.
Með fyrirfram þökk,
f.h fjölskyldunnar,
Díana Hafsteinsdóttir