Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

Aðstoðin til þurfandi hefur aldrei verið eins glæsileg og nú
Laugardagur 4. janúar 2014 kl. 14:03

Aðstoðin til þurfandi hefur aldrei verið eins glæsileg og nú

Kæru Suðurnesjabúar. Sjálfboðaliðar hjá útibúi Fjölskylduhjálpar Íslands að Baldursötu 14 Reykjanesbæ, vilja þakka allan þann stuðning og hlýhug sem starfseminni hefur verið sýndur fyrir þessi jól. Aðstoðin til þurfandi hefur aldrei verið eins glæsileg og nú, okkur hefur borist ótal gjafir í peningastyrkjum, gjafabréfum, matvælum og jólapökkum fyrir börn unglinga og fullorðna. Það sýnir okkur að við stöndum saman þegar við vitum af öðrum í neyð.

Viljum við segja frá móður sem kom ásamt syni sínum færandi hendi með jólamat til gjafa. Við vorum að gefa jólapakka og matvæli til skjólstæðinga þegar ungi drengurinn varð svo andáttugur yfir þessu öllu saman og spurði hvers vegna væri verið að gefa gjafir og mat? Móðirinn tjáði honum að það væru ekki allir sem fengju gjafir eða ættu fyrir jólamat. Hann spurði móður sína hvort þau gætu eitthvað hjálpað. Móðirinn sagði, við skulum athuga hvað við getum gert. Hún skrifaði á Facebook og hvatti alla þá vini sem væru aflögufærir með eitthvað framlag og gætu lagt til við kaup á matvælum. Við fengum síðan símtal, að það væru komin 165 þúsund krónur í söfnunina og haldið var af stað í Nettó, þar sem versluð voru matvæli og jólagjafir. Nettó ekki í fyrsta skipti lagði sitt af mörkum og hjálpaði til. Síðan héldu mæðginin í FÍ að Baldursgötu 14 á Þorláksmessu með glaðninginn. Við fylltumst svo miklu þakklæti og stolti af þessari ungu móður og syni hennar að hafa getað gert þessa hluti sem við teljum kraftaverk.  Unga móðirin heitir Gunnhildur E. Vilbergsdóttir og sonurinn Darri Berg Jóhannsson og er hann 8 ára. Með þeim í för kom Vignir Óskarsson og gaf 100 þúsund krónur. Einar G. Einarsson kom færandi hendi með tvo fulla kassa af hamborgarhryggjum, Helgi í Þvottahöllinni ehf gaf 100 þúsund krónur, Magnús Magnússon gaf stóra peningaupphæð, Kristinn Matthíasson gaf 10 þúsund krónur, Bjössi í Bílageiranum gaf mat fyrir tvær fjölskyldur, Kvenfélagið Njarðvík styrkir starfið  með því að greiða 3ja mánaða  húsaleigu fyrir Baldursgötu 14, Reykjanesbær styrkti starfsemina með 350 þúsund króna framlagi, Nettó styrkti með gjafakortum, Kiwanisklúbburinn Keilir gaf eitt hundrað þúsund króna styrk og 10 gjafabréf á jólatré, Kiwanisklúbburinn Hof í Garði gaf fiskibollur fyrir 90 fjölskyldur. Síðan komu framlög frá mörgu góðu fólki sem vildi ekki segja til nafns.

En fremur viljum við nefna merkar konur í Reykjanesbæ, frú  Jenný Ólsen og frú Lenu Ólsen sem hafa gefið ómældan tíma og vinnu við að sauma fallega hluti sem seldir eru til fjáröflunar. Sigurjón í Sigurjónsbakaríi hefur styrkt starfið öll árin með brauðmeti. Ekki má gleyma versluninni Englabörnum fyrir þær frábæru vörur sem hún hefur styrkt okkur með síðast liðin 4 ár  og gert okkur kleift að selja á góðu verði á nytjamarkaði okkar.

Öllu því góða fólki sem hafa stutt okkur með jólagjöfum undir tréð í Nettó Reykjanesbæ er ómetanlegt. Fjölskylduhjálpin í Reykjanesbæ deildi matargjöfum til 300 fjölskyldna og einstaklinga. Starfið er alfarið unnið í sjálfboðavinnu margra góðra einstaklinga með hugsjón að leiðarljósi. Bættust margir nýir hjálparliðar í hóp sjálfboðaliða fyrir þessi jól. Við viljum senda öllu þessa góða fólki á Reykjanesi bestu þakkir fyrir yndislegan stuðning til þeirra er minnst hafa á svæðinu.
 
Starfsemin á Reykjanesi er rekin  af Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjavík sem sendir í réttu hlutfalli út frá þörf varning sem keyptur er fyrir heildarstarfsemina. Stærstu stuðningsaðilar Fjölskylduhjálpar Íslands eru: Einstaklingarnir í landinu,  Mjólkursamsalan, Myllan-Brauð, Bakarameistarinn, Björnsbakarí, Sölufélag garðyrkjumanna, Kjarnafæði, Oddi-Plastprent, Reitir fasteignafélag, Litla-prent, Nettó, Sambíóin, Samkaup, Krónan, Norvík, Sena, Ölgerðin, ÍSAM, Eimskip-Sundafrost, Flytjandi, Kringlan jólatréð, Smáralind jólatréð, Marko-merki, Pipar auglýsingastofa, Hafnarbakki, Gámaþjónustan, Esja kjötvinnsla, Síminn, Securitas og fleiri góð fyrirtæki ásamt  félagasamtökum og menntastofnunum í landinu.

Með þakklæti og jólakveðju,
f.h. sjálfboðaliða útibús Fjölskylduhjálpar Íslands í Reykjanesbæ,
Anna Valdís Jónsdóttir, verkefnastjóri.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024