Landhelgisgæslan 21-28. apríl
Landhelgisgæslan 21-28. apríl

Aðsent

Aðgengi eru ekki forréttindi - þau eru grunnþörf
Laugardagur 25. apríl 2026 kl. 18:30

Aðgengi eru ekki forréttindi - þau eru grunnþörf

Ég hef lengi verið með augu fyrir aðgengismálum af því einstaklingur í fjölskyldunni minni hefur þurft að notast við stoðtæki að hluta ævi minnar og þá fór ég að skanna Sveitafélagið Voga og aðgengi að náttúruperlum og það þarf að skoða gera betur hér koma upp nokkur svæði sem hægt væri að gera betra aðgengi að.

Fjaran okkar er gott dæmi. Hún er falleg og dregur fólk að sér, en hún er ekki aðgengileg fyrir þá sem nota stoðtæki eða eiga erfitt með gang. Með einföldum hætti væri hægt að bæta úr þessu, til dæmis með því að setja upp ramp sem leiðir niður að fjörunni. Slík framkvæmd myndi skipta miklu máli.

Nýsprautun sumardekk
Nýsprautun sumardekk

Aðgengi að hundagerðinu er einnig ábótavant. Göngustígurinn þangað er erfiður yfirferðar fyrir þá sem eiga í hreyfierfiðleikum. Fyrir suma er þetta einfaldlega hindrun sem útilokar þá frá því að nýta svæðið.

Þetta snýst ekki bara um aðstöðu. Þetta snýst um þátttöku.

Ef við ætlum að byggja samfélag fyrir alla, þá verðum við að tryggja aðgengi fólks. Aðgengi þarf að vera hluti af skipulagi frá upphafi, ekki eitthvað sem er bætt við síðar.

Ég vil einnig nefna ferðaþjónustu fatlaðra. Hún er mikilvæg, en hún mætir ekki alltaf þörfum notenda. Í dag er þjónustan oft bundin við ferðir innan ákveðins svæðis, til dæmis til Reykjanesbæjar. En þegar sérfræðiþjónusta er staðsett í Reykjavík, þá skapar það vandamál. Fólk situr eftir án raunhæfra valkosta.

Þetta er spurning um jafnræði og sanngirni.

Jóhanna Brynja Ólafsdóttir

Höfundur skipar 10. sæti á lista XA Fyrir Samfélagið  í Vogum

Miðbæjareignir
Miðbæjareignir