Public deli
Public deli

Aðsent

Að þora að alast upp hinsegin
Þriðjudagur 10. maí 2022 kl. 18:38

Að þora að alast upp hinsegin

Á uppvaxtarárum okkar kemur kynhneigðin, kynímyndin og spurningin hver er ég hjá flest öllum ungmennum og tilfinningin að fá að tilheyra, fá að vera og upplifa sig örugg í umhverfi sínu. Fyrir flest ungmenni er það mögulegt og næga fræðslu að sækja víðsvegar og félagsstarf í mörgum hornum að líta eftir, hvar þú vilt vera, hvernig þú sérð sjálfan þig og hverju þú vilt tilheyra. En hjá hinsegin ungmennum eru valmöguleikarnir og jafningjagrundvöllurinn ekki eins fjölbreyttur. Hann er í raun frekar lítill ef eitthvað er en eina félagsstarf þeirra á öllum suðurnesjum er Hinsegin Plútó sem unnið er í 100% sjálfboðastarfi og er næsta félagsstarf alla leið til miðbæ Reykjavíkur að sækja í félagsmiðstöð Samtakanna 78.

En af hverju er félagsstarf hingsegin ungmenna málaflokkur sem þarf að sinna og hlúa betur að?  Því þar er þeirra jafningja grundvöllur, þar sem þessi ungmenni fá að vera, tilheyra og upplifa sig með þeim sem þau tengja sig við án hræðslu um að vera dæmd eða útskúfuð. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Rannsóknir hafa sýnt að hluti hinsegin ungmenna í grunn og framhaldsskólum hér á landi upplifa óöryggi í skólanum vegna kynhneigðar sinnar, kyns og kyntjáningar. 40% þáttakanda í könnun sem Samtökin 78 í samstarfi við Teachers College, Columbia University og GLSEN (Gay, Lesbian, & Straigt Education Network) stóðu fyrir sögðust forðast búningsklefa, 33% forðuðust leikfimitíma og 23% voru fjarverandi í einn eða fleiri daga á mánuði vegna óöryggis í skóla (Samtökin 78, 2020). Þetta eru tölur sem við ættum ekki að vilja sjá og getum heldur ekki litið undan sem samfélag. Ábyrgð okkar sem samfélags liggur gagnvart öllum ungmennum en ekki einungis meirihlutanum. Að fá að vera til eins og þú ert í öllu því umhverfi sem þú stundar vegna áhuga eða skyldu er skrýtin setning að þurfa að segja árið 2022 og þó við sem land erum langt komin með margt sem snertir hinsegin málefni þá eru margir þættir sem enn þarf að halda vel utan um og enn aðrir þættir sem bæjarfélagið í heild sinni þarf að vinna enn betur í.  Þar þarf að bæta enn meiri fræðslu um fjölbreytileika lífsins, réttinn á að fá að vera til, vera eins og við öll viljum vera án hættu á útskúfun, hunsun eða fjandsamlegrar framkomu. Þegar öllu er á botninn hvolft þá eru öll ungmenninn okkar framtíðar fjárfesting okkar. Höldum saman utan um heildina.

Ragnar Birkir Bjarkarson
6. sæti listi Pírata og óháðra.