Að taka afstöðu
Marta Sigurðardóttir skrifar.
Guðmundur Bragason ritaði í vikunni grein um nýjan íþróttasal á vef Víkurfrétta. Við í Samfylkingunni fengum Guðmund í heimsókn til okkar til að kynna tillögur sínar að nýjum íþróttasal. Við hlustuðum gaumgæfulega á ágætar hugmyndir hans. Í málefnavinnu okkar fórum við vel yfir þennan möguleika. Verðmiðinn á nýjum íþróttasal er óljós og liggur ekki fyrir. Það væri óábyrgt af frambjóðendum, sama hvar í flokki þeir standa að lofa byggingunni áður en raunkostnaður liggur fyrir. Stjórnmál nútímans hafna þess háttar vinnubrögðum.
Sennilega vilja mjög margir sjá nýjan íþróttasal rísa, en örugglega ekki sama hvað það kostar. Hér eru ágætir áhugamenn um íþróttir að leggja fram góðar tillögur og er vinna þeirra virðingaverð. Þessar tillögur viljum við í Samfylkingunni skoða vel. Við munum fara fram á að gert verði nákvæmt mat á þessum tveim tillögum sem uppi eru. Bæði á þörfinni fyrir mannvirkin, kostnað við framkvæmdir og rekstur þeirra. Í framhaldi af því verði niðurstöður kynntar fyrir bæjarbúum, sem velji svo þá leið sem þeim hugnast best. Frambjóðendur Samfylkarinnar eru sammála um þessa leið. Við teljum hana ábyrga og skynsama.
Grindvíkingar vita líka vel að nú er kosið um fleira en íþrottamannvirki. Ábyrga fjármálastjórn, málefni eldri borgara, fatlaðra, fræðslumál, höfnina og margt fleira. Við munum ekki fara opinberlega í frekari umræðu um afstöðu okkar í þessu máli. Hún liggur fyrir, við viljum að skýrir valkostir liggi fyrir og Grindvíkingar velji svo í framhaldinu hvaða kostur hentar samfélaginu best.
Að endingu þetta. Ég, Marta Sigurðardóttir, mun vinna ásamt frambjóðendum Samfylkingarinnar fyrir Grindvíkinga. Við mótum stefnu flokksins í sameiningu, styðjum góðar hugmyndir en pössum okkur á sama tíma að vera gagnrýnin á okkar störf. Að halda því fram að ég fylgi skoðunum annarra í blindni er rangt og ómálefnalegt. Það vita þeir sem mig þekkja.
Marta Sigurðardóttir
Undirrituð skipar 1. sæti á lista Samfylkingarinnar í Grindavík.