Að skapa sátt
Eitt af því sem ég hef lært á mínum stutta ferli sem stjórnmálamaður og gefið hefur mér mest er að samskipti og samræða eru lykilatriði í að byggja upp gott samfélag. Ég var og er ekkert öðruvísi en annað fólk með sterkar skoðanir og meiningar, sem ég tel oftar en ekki að séu þær einu réttu. Lengi fram eftir mínu lífi var ég róttækur og reif kjaft (geri stundum enn) og taldi að svart væri hvítt og hvítt væri svart og hélt því fram að þeir sem ekki aðhylltust mín sjónarmið og skoðanir væru nú bara skrítnir. En það er nú svo yndislegt með þetta líf að með tímanum þroskast maður og verður víðsýnni, fer að sjá að litróf lífsins er töluvert meira en bara svart og hvítt. Ekki síst gerist það þegar maður áttar sig á því að til er fólk sem hefur aðrar skoðanir og aðra lífsýn en maður sjálfur, að átta sig á því gerir mann að betri manneskju. Manneskju sem þrátt fyrir sterkar skoðanir getur tekið tillit til skoðana annarra og borið virðingu fyrir þeim. Það er öllu fólki hollt að geta sett sig í spor annarra og ekki síst þeim sem leggja fyrir sig að starfa í stjórnmálum.
Í námi mínu við Menntavísindasvið Háskóla Íslands lærði ég mikið um hin jákvæðu samskipti og mikilvægi þeirra í lífi okkar. Sigrún Aðalbjarnardóttir prófessor er höfundur bókarinnar Virðing og umhyggja - Ákall 21. aldar. Bók þessi er frábær leiðarvísir fyrir alla þá sem ætla að leggja fyrir sig kennarastarfið þar sem að hún tekur á öllum lykilþáttum mannlegra samskipta með höfuðáherslu á umhyggju og virðingu sem er undirstaða sáttar meðal manna. Ekki síst fjallar hún um mikilvægi samræðunnar og jákvæðra samskipta, hún segir m.a.: „...þekking og skilningur byggist upp í félagslegum samskiptum, ekki síst í samræðum þar sem fólk teflir fram ýmsum sjónarmiðum sínum, greinir á og kemur sér saman.“
Björt framtíð hefur þetta sem eitt af sínum leiðarljósum enda einn af lykilþáttum mannlegra samskipta.
Í kosningaáherslum Bjartrar framtíðar segir:
„Blásum til stóraukins samráðs milli ríkisstjórnar, Alþingis, sveitarfélaga, atvinnulífsins, launþega, fjármálageirans og alls konar samtaka í þjóðfélaginu um langtímamarkmið og umbætur á ýmsum sviðum. Það minnkar óvissu. Frá hruni hafa verið skrifaðar hátt í 200 skýrslur um hvað sé rétt að gera. Margar góðar. Stefnumörkun er fyrir hendi. Mikil rýnivinna búin. Nú er að stilla saman strengi og framkvæma“
Þetta teljum við eitt af þeim lykilatriðum sem geta leitt okkur Íslendinga út úr þeim öldudal sem við höfum verið í undanfarin misseri og skapað meiri sátt í samfélaginu. Samráðsferli þar sem sjónarmið allra fá að koma fram og skoðanamunur leiddur til lykta með samræðunni.
Lifið heil.
Páll Valur Björnsson
1. sæti á lista Bjartrar framtíðar í Suðurkjördæmi.