Bygg
Bygg

Aðsent

Að gefnu tilefni
Mánudagur 19. september 2011 kl. 09:49

Að gefnu tilefni

Mál málana í Grindavík þessa dagana er ákvörðun bæjarráðs að kaupa húsnæði sem nýtist sem bæjarstjórabústaður. Sú ákvörðun á sér langa forsögu, allt frá því að núverandi bæjarstjóri var ráðinn sumarið 2010 og eiga bæjarbúar rétt á því að vita á hvaða forsendum bæjarfulltrúar tóku þá ákvörðun.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Síðasta kjörtímabil var Grindvíkingum erfitt og dýrt. Tíð meirihlutaskipti og bæjarstjóraskipti kosta peninga. Því var mikil vinna lögð í að ráða bæjarstjóra sem væri bæjarstjóri allra í bæjarstjórn og allra bæjarbúa og minnka þannig líkur á tíðum bæjarstjóraskiptum. Kröfurnar voru miklar; menntun við hæfi, reynsla, búseta í bæjarfélaginu, þátttaka í bæjarlífinu, leiðtogahæfileikar og svo mætti lengi áfram telja. Ljóst var snemma í ferlinu að þeir sem skoruðu hæst hjá Capacent voru ekki búsettir í Grindavík og þá voru góð ráð dýr enda ein af kröfunum þær að bæjarstjóri og hans fjölskylda skyldu búa í Grindavík.


Almenna reglan á almennum atvinnumarkaði er sú að starfsmenn útvega sér sjálfir húsnæði en staðreyndin er hins vegar að þegar kemur að bæjarstjórum eru mismunandi ákvæði í samningum hvernig húsnæðismálum er háttað. Grindvíkingar hafa líklega reynt allar mögulegar útgáfur af þessu fyrirkomulagi og hefur Grindavíkurbær tvisvar sinnum gert samkomulag við bæjarstjóra um að kaupa af þeim húsnæði sem þeir eiga í bæjarfélaginu þegar þeir láti af störfum. Í bæði skiptin þurfti að kaupa húsnæði af bæjarstjóra á mun hærra verði en eðlilegt getur talið og hugnaðist okkur því ekki sú leið. Þá voru eftir tveir möguleikar, annars vegar að borga hærri laun og krefjast þess að bæjarstjóri útvegaði sér sjálfur hús eða útvega húsnæði.


Ráðning bæjarstjóra er ekki einhliða samningur. Þetta er samkomulag milli bæjarstjórnar og bæjarstjóra þar sem báðir aðilar koma með kröfur og síðan er reynt að leita að málamiðlun. Samkomulag var um að greiða lægri laun en tíðkast í nágrannasveitarfélögum og sveitarfélögum af sambærilegri stærð en í staðinn yrði bæjarstjóra útvegað húsnæði. Samkomulag var um að bæjarstjóri fengi ekki greiddar neinar aukagreiðslur, svo sem dag- og aksturspeninga, líkt og tíðkast víðsvegar. Eðlilegur uppsagnarfrestur er til staðar í ráðningarsamningnum ólíkt samningi fyrri bæjarstjóra. Húsnæðisöryggi eru einu hlunnindin í samningnum.


Með því að greiða bæjarstjóra lægri laun og útvega í staðinn hús sparast um 10-12 milljónir í laun og launatengd gjöld á kjörtímabilinu miðað við laun bæjarstjóra í sambærilegum bæjarfélögum. Ef við gefum okkur að sami bæjarstjóri verði í tvö kjörtímabil og sama fyrirkomulag verður áfram er sparnaðurinn um 20-24 milljónir í launakostnað. Varðandi þann möguleika að leigja húsnæði fyrir bæjarstjóra í stað þess að kaupa er vert að benda á að sá möguleiki var skoðaður en enginn var tilbúinn að leigja húsnæði til langs tíma, þ.e.a.s. út kjörtímabilið, auk þess sem leiga myndi kosta um 7-8 milljónir á kjörtímabilinu. Mun skynsamlegra er að nýta þessa fjármuni í kaup á eign sem hægt er að selja síðar heldur en í launakostnað eða leigu.


Bæjarfulltrúar, er samþykktu að kaupa húsnæði fyrir bæjarstjóra, gerðu það á þeim grundvelli að það væri hagstæðara til lengri tíma litið fyrir bæjarfélagið og til að standa við þann ráðningasamning sem gerður var sumarið 2010. Ráðningasamningur var samþykktur af öllum sjö bæjarfulltrúum á bæjarstjórnarfundi þar sem fram kom að bæjarsjóður myndi útvega húsnæði fyrir bæjarstjóra. Þann samning ber að virða. Á þeim tíma sem ákvörðunin var tekin kom ekki fram gagnrýni á þetta fyrirkomulag og er nú komin á ráðningasamningur sem ber að standa við.


Bryndís Gunnlaugsdóttir og Guðmundur Pálsson

Bæjarfulltrúar B- og D-lista í Grindavík