A-listinn eða alræði D-listans

Samkvæmt niðurstöðum þessara skoðanakannana er stórhætta á að í bæjarstjórn fjölgi þægum bæjarfulltrúum D-listans sem komi þá aðeins upp í ræðustól til þess að lýsa því yfir hve sammála þeir eru bæjarstjóranum, gagnrýnum röddum fækki og fólk úr einum stjórnmálaflokki með einsleitar skoðanir móti bæinn okkar næstu fjögur árin.
Eiga einsleit sjónarmið að ráða næstu fjögur árin?
Það getur ekki verið bænum okkar hollt að sjónarmið eins stjórnmálaflokks (eða eins manns ef út í það er farið) verði jafn yfirgnæfandi og allt stefnir í. Sjónarmið sem m.a. kristallast í háum álögum á íbúa, fasteignagjöld og leikskólagjöld eru hærri í Reykjanesbæ en í sambærilegum sveitarfélögum og metnaðarleysi í skipulagsmálum, t.d. áætlaða blokkabyggð D-listans á Fischerstorfunni, Vatnsnesinu og á Stapanum.
Þeir sem aðhyllast félagshyggju, jafnrétti og jöfn tækifæri til handa öllum verða að tryggja að málsvarar þessara sjónarmiða séu sem flestir í bæjarstjórn. A-listinn er málsvari þessara sjónarmiða og eina raunverulega andstöðuaflið við D-listann.
Eysteinn Eyjólfsson
formaður Samfylkingarinnar í Reykjanesbæ og frambjóðandi A-listans