Á gamli bærinn að samsvara gömlum tímum?
Sú var tíðin í ,,gamla daga” að háir kantar, brattar tröppur og þröngar dyragættir gerðu fötluðum einstaklingum erfitt fyrir að nýta sér þá þjónustu sem bauðst í þeirra heimabæ. Með upplýstu samfélagi og réttindabaráttu hefur þessu verið kippt í liðinn á flestum stöðum og það er lágmarkskrafa að þegar hafist er í framkvæmdir að hugsað sé fyrir aðgengi fyrir alla. Eða hvað...? Eins og svo margir um helgina fór ég um götur bæjarins, þræddi sýningar og mannfagnaði. Nýafstaðin Ljósanótt var alveg meiriháttar og frábært að sjá hvernig bærinn iðaði af lífi, margt áhugavert að skoða en eitt vakti þó sérstaklega athygli mína - aðgengi fatlaðra á Hafnargötunni! Ég hef verið fjarri góðu gamni og unnið úti á landi og þannig misst af lokaframkvæmdunum á Hafnargötunni. Hún lítur virkilega vel út og það er gaman að fara hana... ef þú ert frískur og með fæturna í lagi. Það hefur gleymst að gera ráð fyrir fólki í hjólastólum sem viðskiptavinum. Margar verslanirnar eru með þrönga aðkomu og ekki hægt fyrir marga af stærri hjólastólum að komast þar í gegn en það er ekki einu sinni möguleiki fyrir einstakling í minni hjólastól að láta á það reyna. Við glænýtt hús númer 20 sem var byggt á Evrópuári fatlaðra, 2003, er ekki möguleiki fyrir einstakling í hjólastól að komast þar upp, brött trappa hindrar það! Ég veit ekki við hvern er að sakast, kannski er þetta einhver smá yfirsjón, í það minnsta er það ekki fullkomin yfirsýn sem beitt var við verkið. Ég hefði talið það lágmarkskröfur í dag að huga að aðgengi fyrir alla í svona framkvæmdum, sérstaklega á ári fatlaðra. Ég legg til að við fjarlægjum hindranir og gerum fólki í hjólastól kleift að fara sinna ferða án þess að þurfa í sífellu að biðja um aðstoð. Vonandi verður ljúft veður í haust svo hægt sé að rífa upp allar þær hellur sem eru farartálmar. Vonandi verður Ljósanótt 2004 þannig að ALLIR sem vilja geta heimsótt sýningar og verslanir án mikilla tilfæringa, því þessi menningarhátíð er eitthvað sem ENGINN má missa af.
Brynja Magnúsdóttir
formaður Ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum.
Brynja Magnúsdóttir
formaður Ungra jafnaðarmanna á Suðurnesjum.