Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

600 þúsund söfnuðust á Andrési utan gátta
Mánudagur 5. desember 2011 kl. 15:10

600 þúsund söfnuðust á Andrési utan gátta

Laugardaginn 3. desember var barnahátíðin Andrés utan gátta haldin í annað sinn í Andrews Thetaer. Um 350 börn mættu í boði fyrirtækjanna sem styðja átakið. Tilgangurinn er að safna fé fyrir Velferðarsjóðinn. Að þessu sinni söfnuðust um 600 þúsund krónur sem renna til Velferðarsjóðsins. Fyrirtækin sem að þessu standa eru:

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024


Keilir, Kadeco, Keflavíkurkirkja, Víkurfréttir, ÍAV þjónusta, Samkaup, Lögfræðistofa Suðurnesja, Fríhöfnin, Landsbankinn, HS-Veitur, HS-Orka.


Í anddyri Andrews Theater bauð jólasveinninn krökkunum að sitja fyrir á mynd með sér. Yfir 100 krakkar þáðu boð ljósmyndarans Þorra – mishikandi enda sumir heldur feimnir við Sveinka. Leikfélag Keflavíkur sýndi brot úr hinni glæsilegu jólasýningu sinni við mikla hrifningu barna og fullorðinna. Það voru svo snillingarnir úr Pollapönk sem rokkuðu skemmtunina heldur betur út við ómælda ánægju sýningargesta. Hópurinn lauk svo dagskrá með því að syngja saman nokkur jólalög með aðstoð Einars Gunnarssonar, harmonikkuleikara með meiru, jólasveinsins og síra Skúla Ólafssonar sem kynnti dagskrá af myndarskap.


Aðstandendum er sönn ánægja af því að standa fyrir þessari samkomu. Við viljum láta gott af okkur leiða til samfélagsins og um leið gleðja unga fólkið. Við þökkum öllum samstarfsaðilum fyrir ánægjulegt samstarf.



Fleiri myndir í myndasafni Víkurfrétta hér á vf.is