50 milljónir til kvenna með viðskiptahugmyndir
Nú hefur Vinnumálastofnun/ Félagsmálaráðuneytið auglýst styrki til Atvinnumála kvenna lausa til umsóknar og er umsóknarfrestur til 28.september næstkomandi. Til umráða nú eru 50 milljónir sem að verður úthlutað til kvenna sem hafa góðar viðskiptahugmyndir.
Að þessu sinni verður hægt að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlana, markaðs- og kynningarmála, þróunarvinnu af ýmsu tagi og hönnunar. Nýnæmi í styrkveitingum að þessu sinni er að konur sem hafa fullmótaða viðskiptaáætlun geta sótt um styrk vegna launakostnaðar í allt að 6 mánuði. Ekki eru veittir styrkir til stærri fjárfestinga í aðstöðu, tækjum og búnaði.
Forsendur þess að umsóknir séu styrkhæfar eru að verkefnið sé í eigu konu/kvenna og stjórnað af konu, að það feli í sér atvinnusköpun til frambúðar og feli í sér nýnæmi eða nýsköpun og að viðskiptahugmynd sé vel útfærð.
Auk styrkja sem úthlutað verður þjónusta við konur sem hafa hug á stofnun fyrirtækja aukin til muna. Í því skyni hefur verið sett upp heimasíða þar sem að hægt verður að fá ráðgjöf og fræðslu auk þess sem sett verður upp samfélagsvefur kvenna í atvinnurekstri.
Á síðunni verður einnig hægt að nálgast margvíslegar upplýsingar um stofnun og rekstur fyrirtækja auk annara hagnýtra upplýsinga en slóðin á síðuna er www.atvinnumalkvenna.is
Hámarksstyrkur í ár er kr. 2.000.000 en ekki eru veittir styrkir sem eru lægri en 300.000. Umsókn skal sækja rafrænt á heimasíðunni.
Kynningarfundir um styrkina og þjónustu við konur sem hyggja á atvinnurekstur verður í Reykjanesbæ þriðjudaginn 23.september á Flughótelinu.
Dagskrá verður auglýst nánar í Víkurfréttum og á heimasíðu verkefnisins.