MSS námskeið haust 2026
MSS námskeið haust 2026

Aðsent

43 fjölskyldur missa heimili sín í dag!
Miðvikudagur 9. október 2013 kl. 11:21

43 fjölskyldur missa heimili sín í dag!

Heimilin verða boðin upp af sýslumönnum í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Akureyri og Keflavík. Hagsmunasamtök heimilanna hafa margoft krafist þess að nauðungarsölur vegna neytendalána verði stöðvaðar, enda eru þær ólögmætar nema dómsúrskurður liggi fyrir. Fulltrúar HH eiga fund með innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þar sem þessi krafa verður ítrekuð enn og aftur.

Nauðungarsölurnar fara auk þess fram meðan beðið er boðaðra aðgerða ríkisstjórnarinnar um leiðréttingu höfuðstóls lána, sem í einhverjum tilfellum myndu bjarga þessum fjölskyldum frá því að missa heimili sín, næðu þær fram að ganga. Nauðungarsölur eru ekki afturkræfar samkvæmt núgildandi lögum.

Bílakjarninn sumar 26
Bílakjarninn sumar 26

F.h. Hagsmunasamtaka heimilanna  
Vilhjálmur Bjarnason, ekki fjárfestir
formaður stjórnar

Bílakjarninn
Bílakjarninn