15 taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi
Fimmtán manns gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi sem fram fer laugardaginn 26. janúar 2013.
Frambjóðendur í stafrófsröð:
• Árni Johnsen, alþingismaður, Vestmannaeyjum
• Ásmundur Friðriksson, f.v. bæjarstjóri, Garði
• Friðrik Sigurbjörnsson, nemi og varabæjarfulltrúi, Hveragerði
• Geir Jón Þórisson, f.v. yfirlögregluþjónn, Vestmannaeyjum
• Halldór Gunnarsson, f.v. sóknarprestur, Hvolsvelli
• Hulda Rós Sigurðardóttir, meistaranemi í opinberri stjórnsýslu, Höfn í Hornafirði
• Kjartan Þ. Ólafsson, f.v. alþingismaður, Ölfusi
• Magnús B. Jóhannesson, framkvæmdastjóri, Reykjanesbæ
• Magnús Ingberg Jónsson, atvinnurekandi, Selfossi
• Oddgeir Ágúst Ottesen, hagfræðingur, Hveragerði
• Ragnheiður Elín Árnadóttir, alþingismaður, Reykjanesbæ
• Reynir Þorsteinsson, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali, Garði
• Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður, Hvolsvelli
• Vilhjálmur Árnason, lögreglumaður, Grindavík
• Þorsteinn M. Kristinsson, lögreglumaður og sveitarstjórnarmaður, Kirkjubæjarklaustri
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst miðvikudaginn 2. janúar 2013. Hægt verður að kjósa bæði á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1 í Reykjavík, og víða í kjördæminu.
Nánari upplýsingar um kosningu utan kjörfundar ásamt öðrum upplýsingum um prófkjörið verða birtar á vefsíðu Sjálfstæðisflokksins, www.xd.is.
Kjörnefnd Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi