Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Aðsent

112 dagurinn á Íslandi í fyrsta sinn
Föstudagur 11. febrúar 2005 kl. 11:07

112 dagurinn á Íslandi í fyrsta sinn

Þegar á bjátar höfum við aðgang að geysilega öflugu neti viðbragðsaðila og hjálparliðs í gegnum eitt samræmt neyðarnúmer fyrir landið og miðin – 112. Með einu símtali í 112 er unnt að virkja á augabragði lögreglu, slökkvilið, almannavarnir, Landhelgisgæsluna, sjúkraflutningamenn, lækna, hjálparlið sjálfboðaliða og barnaverndarnefndir. Yfir 300 þúsund erindi bárust 112 á síðasta ári.

Árangur af starfi þessara aðila byggir á hraða, samvinnu og skipulagi. Þeir taka höndum saman um að kynna starfsemi sína í dag, föstudaginn 11. febrúar, þegar 112 dagurinn er haldinn á Íslandi í fyrsta sinn. Gert er ráð fyrir að 112 dagurinn verði árviss viðburður og beri upp á 11. febrúar ár hvert.

Fjölbreytt dagskrá í Smáralind
Viðamikil dagskrá verður í Smáralind í Kópavogi kl. 14-18, annars vegar í göngugötunni og hins vegar á bílaplaninu að norðanverðu, við Smárabíó. Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir meðal annars björgun og lendir á bílaplaninu kl. 15.00.

Göngugatan
kl. 14.00 Björn Bjarnason dómsmálaráðherra flytur ávarp
kl. 14.10 Skyndihjálparmaður Rauða krossins 2004
kl. 14.20 Verðlaun í Eldvarnagetraun LSS 2004
kl. 14.30-18.00
• Sjúkraflutningamenn sýna búnað og mæla blóðsykur gesta
• Sýnikennsla í skyndihjálp
• Björgunarsveitarmenn sýna búnað sinn
• Tækjabíll umferðardeildar ríkislögreglustjórans
• Kynning á starfsemi 112 og viðbragðsaðila
• Útkall 2004 – ljósmyndasýning
• Bein vefútsending frá varðstofum 112 og Fjarskiptamiðstöðvar lögreglu á 112.is og rls.is

Stórbrotin tækjasýning á bílaplaninu við Smárabíó
kl. 15.00-18.00 verða þyrla, sjúkrabíll, slökkvibíll, björgunarbíll, vettvangsstjórabíll lögreglu, sprengjubíll Landhelgisgæslunnar og vélmenni til sprengjueyðingar til sýnis.
kl. 15.00 Landhelgisgæslan og SHS sýna björgun sjúklings í þyrlu.
kl. 16.00 SHS sýnir björgun fólks úr bílflaki með klippum og glennum.
kl. 17.00 Landhelgisgæslan og SHS sýna björgun sjúklings í þyrlu.

Opið hús víða um land
Fjöldi viðbragðsaðila víða um land býður almenningi í heimsókn eftir hádegi. Almenningi gefst þá kostur á að ræða við starfsmenn og skoða margvíslegan búnað. Gestum verður víða boðið upp á hressingu.

• Björgunarmiðstöðin Skógarhlíð 14-18
• Lögreglan í Reykjavík, Hverfisgötu, 14-16
• Slökkvistöðin á Sauðárkróki 14-18
• Slökkvistöðin á Ísafirði 14-18
• Slökkvistöðin á Akureyri 14-18
• Brunavarnir Suðurnesja 14-18
• Lögreglan á Akureyri 14-18
• Lögreglan í Vestmannaeyjum 14-17
• Lögreglan á Sauðárkróki 14-18
• Lögreglan á Blönduósi 14-16
• Lögreglan og fleiri á Húsavík 13-18
• Lögreglan á Selfossi 14-17
• Lögreglan á Ísafirði 14-18
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024