Virkjun | 15. febrúar 2011 | 14:30:13
Vinir í velgengni
- Nýsköpun í mannauði
Verkefnin í daglega lífinu eru mörg. Allt frá einföldum hlutum eins og að versla í matinn, til erfiðari ákvarðanna eins og að sækja um vinnu eða semja við lánadrottna. Sumir standa í barnauppeldi, á meðan aðrir eiga nóg með sjálfa sig. Flest viljum við standa okkur vel í þessum hlutverkum en oft vitum við ekki hvaða leið á að fara. Sum okkar eiga jafnvel erfitt með að sjá nægilega skýrt hvar þau standa í dag.
Undanfarin ár hef ég tekist á við mörg verkefni í lífinu. Framan af var það barningur og oft valdi ég rangar leiðir við uppfylla drauma mína. Ég gekk ítrekað á vegg og barðist gegn straumnum. Niðurstaðan var yfirleitt sú að ég sat í súpunni og gafst einfaldlega upp. En þetta var ekki alltaf ómögulegt og við og við náði ég árangri. Sem dæmi hætti ég neyslu áfengis, hætti að reykja, lagði til hliðar fordóma, hroðvirkni og ótta og lærði góð og eðlileg samskipti. Fjármál mín hafa færst frá glundroða og ráðleysi til jafnvægis. Samskiptin við fjölskyldu mína hafa stórbatnað og ég hef eignast marga kæra vini. Ég sagði skilið við “brauðstritið” svokallaða og fór í langþráð háskólanám. Samhliða þessum breytingum þá hef ég tekið saman sigrana og mistökin sem ég gerði á leið minni og þróað úr því námskeið fyrir alla sem langar til að breyta lífi sínu og öðlast betri líðan.
Í lífinu eru ekki bara vandamál heldur líka lausnir. Þetta er slagorð námskeiðsins „Vina í velgengni“ - skemmtilegs mannlegs nýsköpunarverkefnis – þar sem viðfangsefnið ert þú sjálfur.
Í okkar hópi eru allir jafn réttháir. Þínar hugmyndir eru jafn mikilvægar og annarra. En það eru oft einföldustu hugmyndirnar sem bjóða upp á áhrifamestu lausnirnar. Við eigum öll innra með okkur þær auðlindir sem við þörfnumst. Sum okkar vantar bara stuðning við að finna og nýta þær betur.
Hvort sem þú óskar þér aukinnar menntunar, vilt þróa áhugamál þín, nýta reynslu þína betur eða velta upp heimspekilegum hugmyndum um lífið og tilveruna, þá ert þú velkominn á þetta námskeið. Þú munt komast að því að þú ert, þegar allt kemur til alls, þín eigin auðlind.
Öllum sem leita eftir betri líðan og vilja taka þátt í skemmtilegu nýsköpunarverkefni er boðið að koma í Virkjun miðvikudaga kl 13.00 og taka þátt í námskeiðinu „Vinir í velgengni“. Aðgangur ókeypis.
Með kærri kveðju,
Haukur Hilmarsson, ráðgjafi og sjálfboðaliði í Virkjun